Samfylkingin hagnaðist um 40 milljónir króna í fyrra

Kostnaður við rekstur Samfylkingarinnar jókst um 50 prósent á árinu 2020. Eigið fé flokksins er rúmlega 200 milljónir króna og jókst um 120 prósent á tveimur árum. Framlög til stjórnmálaflokka úr ríkissjóði voru stóraukin á síðasta kjörtímabili.

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Tekjur Sam­fylk­ing­ar­innar á síð­asta ári voru 152,4 millj­ónir króna. Þar af komu 114 millj­ónir króna í formi fram­laga frá rík­is­sjóði, Alþing­i og sveit­ar­fé­lög­um, tæp­lega 13 millj­ónir komu í form fram­laga ein­stak­linga og rúm milljón króna frá lög­að­il­um. Inni í þeim tölum eru ekki inn­heimt flokks­gjöld, alls um fjórar millj­ónir króna, en þau nán­ast tvö­föld­uð­ust milli ára. 

Þorri þeirra ein­stak­linga sem gáfu yfir 300 þús­und krónur til flokks­ins er fólk úr for­ystu­sveit hans. Má þar nefna for­mann­inn Loga Ein­ars­son, vara­for­mann­inn Heiðu Björg Hilm­is­dóttur og Dag B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóra í Reykja­vík. 

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Sam­fylk­ing­ar­innar sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokk­ur­inn var með átta þing­menn í lok síð­asta kjör­tíma­bils eftir að Rósa Björk Björk Brynj­ólfs­dóttir gekk til liðs við hann. Hann fékk hins vegar sjö kjörna árið 2017 og 12,1 pró­sent atkvæða, en atkvæða­magnið segir til um hversu háa fjár­hæð flokkar fá úthlutað úr rík­is­sjóði. Sam­fylk­ingin tap­aði 2,2 pró­sentu­stigum í síð­ustu kosn­ingum og er nú með sex þing­menn. Fram­lög til flokks­ins úr rík­is­sjóði munu því drag­ast saman á þessu kjör­tíma­bili.

Launa­kostn­aður jókst um 46 pró­sent

Launa­kostn­aður flokks­ins jókst umtals­vert á árinu 2020, eða um 46 pró­sent, og var 41,7 millj­ónir króna. Hjá flokknum störf­uðu þrír starfs­menn á árinu 2020. Í raun jókst allur kostn­aður við rekstur flokks­ins, alls um 50 pró­sent milli ára, og var 110,2 millj­ónir króna. Það þýðir samt sem áður að rekstr­ar­hagn­aður af rekstri Sam­fylk­ing­ar­innar var 42,2 millj­ónir króna á árinu 2020 og hreinn hagn­aður tæp­lega 40 millj­ónir króna. 

Auglýsing
Handbært fé í árs­lok. var 113,6 millj­ónir króna og heild­ar­virði eigna flokks­ins var metið á 245,6 millj­ónir króna. Sam­fylk­ingin skuld­aði lítið um síð­ustu ára­mót, alls 42,2 millj­ónir króna, og lækk­uðu skuld­irnar um rúm­lega 34 millj­ónir króna milli ára. Þar skiptir mestu að skuldir við lána­stofn­anir rúm­lega helm­ing­uð­ust. 

Eigið fé flokks jafn­að­ar­manna var 203,5 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og jókst um tæp­lega 39 millj­ónir króna milli ára. Frá árs­lokum 2018 og til loka síð­asta árs jókst eigið fé flokks­ins um 110,5 millj­ónir króna, eða um 120 pró­sent.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Fram­lög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­sent var sam­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­ónir króna. 

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að þeir níu stjórn­­­mála­­flokkar sem fengu nægj­an­­legt fylgi í síð­­­ustu þing­­kosn­­ingum til að fá úthlutað fjár­­munum úr rík­­is­­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári. 

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­­trúa á þingi auk Sós­í­a­lista­­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­­legt fylgi í síð­­­ustu kosn­­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­­hæð og flokk­­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­­­anir stjórn­­­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­­­mála­­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­­ónir króna úr rík­­is­­sjóði á fimm ára tíma­bil­i. 

Til við­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­manna þing­­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­­menn stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka og fram­­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­­um. Hámarks­­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­­ur.

]Auk þess var sú fjár­­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­­greindur í árs­­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­­­mála­­­flokk­anna skila árs­­­reikn­ingum sínum til rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun hætti að birta tak­­­mark­aðar upp­­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­­ur­­­skoð­end­­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­­arnir þó ekki að sæta því að árs­­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru árs­reikn­ing­arnir nú að birt­ast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki birt árs­reikn­inga þriggja flokka; Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Vinstri græn og Píratar vegna síð­asta árs. Kjarn­inn mun fjalla um árs­reikn­inga allra þeirra flokka sem skilað hafa árs­reikn­ingi á næstu dög­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent