Forstjóri LHG opinn fyrir flutningi skipareksturs til Skagafjarðar

Tyr-a.jpg
Auglýsing

Land­helg­is­gæslan er opin fyrir því að skoða til­lögur Norð­vest­ur­nefndar rík­is­stjórn­ar­inn­ar, um flutn­ing skipa­rekst­urs gæsl­unnar til Skaga­fjarð­ar. Þetta kemur fram í skrif­legu svari Land­helg­is­gæsl­unnar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Í sjón­varps­fréttum RÚV í gær­kvöldi var sagt frá til­lögum Norð­vest­ur­nefnd­ar­innar svoköll­uðu, en sam­kvæmt frétt RÚ­V eru flutn­ingar RARIK á Sauð­ár­krók og skipa­rekstur Land­helg­is­gæsl­unnar í Skaga­fjörð á meðal hug­mynda nefnd­ar­inn­ar. Kostn­aður við aðgerð­irn­ar er áætl­aður nema hund­ruðum millj­óna króna.

Norð­vest­ur­nefndin var skipuð fyrir til­stuðlan rík­is­stjórn­ar­innar í vor, til að vinna til­lögur um hvernig efla megi byggða­þró­un, fjár­fest­ingar og fjölga atvinnu­tæki­færum á svæð­inu. Stefán Vagn Stef­áns­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Skaga­firði, er for­maður nefnd­ar­inn­ar. Sam­kvæmt áður­nefndri frétt RÚV voru til­lögur nefnd­ar­innar kynntar á rík­is­stjórn­ar­fundi á föstu­dag.

Auglýsing

Æski­legt að hafa skip fyrir norðan



Kjarn­inn leit­aði við­bragða Georgs Lár­us­son­ar, for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unn­ar, við til­lögum Norð­vest­ur­nefnd­ar­inn­ar. Í skrif­legu svari hans til Kjarn­ans segir for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar að hún sé opin fyrir því að skoða til­lögur nefnd­ar­inn­ar. „Kallað hefur verið eftir því af okkar hálfu að Land­helg­is­gæslan geti haft góðan við­búnað til björg­unar og eft­ir­lits, bæði á landi og sjó, frá fleiri stöðum á land­inu. Frá því að þyrlur varn­ar­liðs­ins hurfu af land­inu hefur ítrekað komið til skoð­unar hvort mögu­legt væri að hafa öfl­uga björg­un­ar­þyrlu stað­setta á Norð­ur- eða Aust­ur­landi sem brugð­ist gæti hraðar við hjálp­ar­beiðnum af svæðum þar í kring.  Slíkt yrði þó að gera í sam­hengi við efl­ingu á núver­andi þyrlu­kosti sem fer að verða kom­inn til ára sinna.“

Þá kemur fram í svari for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar að gæslan hafi talið æski­legt að hafa skip til reiðu fyrir norðan land sem geti sinnt haf­svæð­unum í norð­vestri. „Varð­skipið Ægir hefur að mestu verið gert út frá Norð­ur­landi und­an­farin miss­eri. Það liggur nú við höfn á Akur­eyri en hefur einnig nýtt hafn­ar­að­stöð­una á Sauð­ár­króki stóran hluta árs­ins. Á Norð­ur­landi er ­góð aðstaða og mikil reynsla í þjón­ustu við skip og það hefur reynst hag­kvæmur kostur fyrir Land­helg­is­gæsl­una að nýta þá þjón­ustu sem þarna er í tengslum við stað­bundin verk­efn­i.“

Að end­ingu segir í svari for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans: „Fyr­ir­sjá­an­leg aukin áhersla á norð­ur­slóðir hefur reglu­lega vakið upp umræðu um nauð­syn fram­tíð­ar­stefnu­mót­unar um gæslu Íslend­inga á þessum svæð­um. Bæði um hvernig við gætum betur stórrar land­helgi okkar í norðri og einnig með hvaða hætti við getum tekið þátt í sam­starfi margra þjóða um þær slóðir sem eru að opn­ast norður af land­inu. Öflug hafn­ar­að­staða á Norð­ur­landi sem liggur vel við öðrum sam­göngum getur verið mik­il­væg fyrir fram­tíð­ina, sem og núver­andi verk­efni Land­helg­is­gæsl­unn­ar.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None