Framkvæmdastjóri hjá Alvogen keypti Sunnuflatarhöllina

f0b038702fb52c67969c8327746d816f.jpg
Auglýsing

Hall­dór Krist­manns­son, fram­kvæmda­stjóri hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Alvogen, hefur keypt ríf­lega 930 fer­metra fok­helt ein­býl­is­hús við Sunnu­flöt 48 í Garðabæ af Lands­bank­an­um, fyrir 53 millj­ónir króna. Húsið hefur verið til tölu­verðar umfjöll­unar í fjöl­miðl­um, en það vakti fyrst athygli árið 2009 í kjöl­far banka­hruns­ins og hefur stundum verið kallað „2009-martröð­in".

Sam­kvæmt frétt Vísis frá því í sept­em­ber var upp­haf­lega settur 93 millj­óna króna verð­miði á hús­ið, en upp­sett verð hefur farið ört lækk­andi síð­an. Í frétt Vísis frá því í sept­em­ber kemur fram að húsið var verð­lagt á sex­tíu millj­ónir þá.

Fyrri eig­andi lét stækka húsið um röska 330 fer­metra



Áður en Lands­bank­inn leysti húsið til sín var það í eigu fast­eigna­sal­ans Arn­ars Sölva­son­ar, sem keypti teikn­ingu að hús­inu og lóð­ina við Sunnu­flöt á sjö­tíu millj­ónir króna árið 2007. Arki­tekta­stofan Gassa gerði teikn­ing­una, en þá átti húsið að vera 600 fer­metr­ar. Þáver­andi eig­andi lóð­ar­innar hafði háleit­ari hug­myndir um stærð þess og gerð, og fékk arki­tekta­stof­una til að bæta meðal ann­ars lík­ams­rækt­ar­sal, sund­laug og heitum pottum við teikn­ing­una. Húsið stækk­aði við það um ríf­lega 330 fer­metra.

Allt kom þó fyrir ekki, og hefur húsið staðið óklárað til sölu síð­ustu ár, en það var um tíma aug­lýst hjá fimm mis­mun­andi fast­eigna­söl­um.

Auglýsing

Svona lítur Sunnuflatarhöllin út í dag. Svona lítur Sunnu­flat­ar­höllin út í dag.

Ætlar að minnka húsið



Í sam­tali við Kjarn­ann segir Hall­dór Krist­manns­son að hann og fjöl­skylda hans ætli sér að búa í hús­inu. „Mér bauðst að kaupa húsið á mjög góðu verði, en við ætlum okkur að minnka það. Í því er rými sem var ætlað var undir spa og sund­laug og eitt­hvað álíka, sem við höfum ekki áhuga á. Þetta er góð fjár­fest­ing, fyrir ein­býl­is­hús sem er fok­hellt í dag.“

Aðal­hæð húss­ins er um 500 fer­metrar að stærð, en Hall­dór hyggst ekki nota um helm­ing af kjall­ara húss­ins. Hann vill ekki gefa upp hvað hann áætlar að kosti að gera húsið íbúð­ar­hæft. „Við ætlum að nýta efri hæð húss­ins, og nú er unnið að því að minnka neðri hæð­ina í sam­vinnu við bygg­inga­mála­yf­ir­völd.“

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None