Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins staðfest í Hæstarétti

hæstiréttur_opt.jpg
Auglýsing

Hæsti­réttur Íslands féllst í dag, með dómi sín­um, á nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hafði áður stað­fest, að sekta bæri móð­ur­fé­lag Síldar og fisks ehf. og Mat­fugls ehf. um átta­tíu millj­ónir króna fyrir ólög­mætt lóð­rétt sam­ráð félag­anna við Bónus um smá­sölu­verð og afslátt af því í versl­unum mat­vöru­keðj­unn­ar. Sam­kvæmt nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem er síðan árið 2011, var mark­mið sam­ráðs­ins að draga úr virkri sam­keppni sem hafi orðið raun­in. Hæsti­réttur sá ekki heldur til­efni til að hrófla við sekt­ar­fjár­hæð­inni.

Greint er frá nið­ur­stöðu máls­ins fyrir Hæsta­rétti Íslands á heima­síðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

For­sögu máls­ins má rekja til rann­sóknar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á svoköll­uðum for­verð­merk­ingum á kjöt­vörum, en um ára­bil tíðk­að­ist að kjöt­vinnslu­fyr­ir­tæki verð­merktu vörur sínar áður en þær voru teknar til sölu í versl­un­um. Árið 2010 gerði Sam­keppn­is­eft­ir­litið sátt við Haga, sem rekur versl­anir undir merkjum Bón­us, og sex kjöt­vinnslu­fyr­ir­tæki vegna máls­ins, þar sem umrædd fyr­ir­tæki við­ur­kenndu brot sín, greiddu sektir og skuld­bundu sig til að láta af for­verð­merk­ingum á kjöt­vör­um.

Auglýsing

Síld og fiskur og Mat­fugl vildu hins vegar ekki gera sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið, sem leiddi til þess að eft­ir­litið tók ákvörðun um brot fyr­ir­tækj­anna árið 2011 og sektaði móð­ur­fé­lag þeirra, Langa­sjó ehf., um 80 millj­ónir króna. Hér­aðs­dómur felldi úr gildi áður­nefndan úrskurð áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála, á þeim rökum að máls­með­ferð gagn­vart Langa­sjó hefði verið ábóta­vant og Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu hefði verið óheim­ilt að leggja stjórn­vald­sekt á móð­ur­fé­lag­ið ­vegna brota dótt­ur­fé­lag­anna.

Með dómi sínum hefur Hæsti­réttur Íslands þar með snúið dómi hér­aðs­dóms, en rétt­ur­inn telur að ekki hafi verið brotið gegn máls­með­ferð­ar­reglum stjórn­sýslu­réttar og að Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu hafi verið heim­ilt að leggja stjórn­valds­sekt á Langa­sjó ehf.. Auk þessa var fyr­ir­tækið og dótt­ur­fé­lög þess dæmd til að greiða Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu fjórar millj­ónir króna í máls­kostn­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None