Framlag til vegaframkvæmda hækkað um 250 milljónir

14471454313_5d118e43e8_z.jpg
Auglýsing

Í ár er áætlað að verja 690 millj­ónum til mal­biks­fram­kvæmda í Reykja­vík og er það 250 milljón króna hækkun frá síð­asta ári, að því er segir í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Fjár­hags­á­ætlun þessa árs gerði ráð fyrir 110 milljón króna hækkun og í borg­ar­ráði í dag var til­laga umhverf­is- og skipu­lags­ráðs um 150 milljón króna við­bót­ar­fram­lag sam­þykkt.  Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að  veð­ur­fars­legar aðstæður í vetur hafi valdið miklu tjóni á gatna­kerf­inu, en nokkuð hefur verið um það að  und­an­förnu að kvartað hafi verið ástandi vega í Reykja­vík.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri, fagnar þessu við­bót­ar­fram­lagi, í færslu á Face­book síðu sinni. „Það bendir margt til þess að þegar fer að viðra og vora til þess verðum við að biðja borg­ar­búa og aðra veg­far­endur um þol­in­mæði og bið­lund - ekki vegna holótts mal­biks, snjóa og veð­urs - heldur vegna óvenju­um­fangs­mik­illa mal­bik­un­ar­fram­kvæmda sem geta tafið fyrir umferð,“ segir Dag­ur.

Auglýsing

Með við­bót­ar­fram­lag­inu sem sam­þykkt var í dag eru fjár­fram­lög til mal­bik­unar þau sömu og fram­lög voru árið 2008 að núvirði, segir í til­kynn­ingu.

Starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar sinna til­fallandi við­haldi og holu­fylla eftir þörfum eins og ávallt hefur verið gert. Veg­far­endur eru hvattir til að láta vita af holum svo hægt sé að bregð­ast við.

Nú í mars og apríl verður ástand gatna metið fag­lega og á grund­velli þess mats verður fram­kvæmda­á­ætlun fyrir mal­bikun gerð. „End­ing gatna fer eftir álagi á þær. Þannig er talið að minni húsa­götur end­ist í 35 ár, fjöl­farn­ari húsa­götur í 30 ár, safn­götur í 20 ár og tengi­brautir í 12 ár.  Rétt er að taka fram að við­hald og mal­bikun stofn­brauta er verk­efni Vega­gerð­ar­inn­ar,“ segir í til­kynn­ingu frá borg­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None