Framleiðsluverðsvísitalan í Þýskalandi tæpum 46 prósentum hærri en fyrir ári

Raforkuverðshækkanir í Þýskalandi skýra mikla og ófyrirséða hækkun á framleiðsluverðsvísitölunni í landinu. Á sama tíma berast fregnir af því að þýska ríkið hafi náð samkomulagi um þjóðnýtingu Uniper, sem er stærsti gasinnflytjandi landsins.

Olaf Scholz forsætisráðherra Þýskalands og leiðtogi Sósíaldemókrata.
Olaf Scholz forsætisráðherra Þýskalands og leiðtogi Sósíaldemókrata.
Auglýsing

Þeim sem fylgj­ast með þýskum hag­tölum svelgd­ist eflaust sumum á morg­un­kaff­inu í morg­un, er í ljós kom að fram­leiðslu­verðs­vísi­talan, sem gefur til kynna breyt­ingar á fram­leiðslu­kostn­aði í þýskum iðn­aði, reis um heil 7,9 pró­sent á milli mán­aða og er nú 45,8 pró­sentum hærri en í ágúst­mán­uði í fyrra.

Í frétta­til­kynn­ingu frá þýsku hag­stof­unni segir að hækkun vísi­töl­unnar á 12 mán­aða tíma­bili hafi aldrei verið meiri en nú mælist og að sömu­leiðis hafi hækk­unin á milli mán­aða aldrei verið meiri.

Sam­kvæmt umfjöllun Reuters-frétta­stof­unnar kom hækk­unin á óvart, en grein­endur höfðu búist við því að vísi­talan hækk­aði um 1,6 pró­sent á milli mán­aða og að 12 mán­aða hækkun yrði rúm 37 pró­sent. Annað kom á dag­inn.

Orku­verð 139 pró­sent upp á milli ára

Orku­verðið í Þýska­landi er stærsta breytan sem vegur til hækk­unar fram­leiðslu­verðs­vísi­töl­unn­ar, en ef orku­verðið væri ekki inni í vísi­töl­unni næmi hækk­unin ein­ungis 14 pró­sentum frá fyrra ári.

Orku­verðið hefur meira en tvö­fald­ast frá fyrra ári og nemur hækkun frá því í ágúst í fyrra nú 139 pró­sentum heilt yfir. Verð á raf­orku vegur þungt inn í þá vísi­tölu, og er sagt skýra hina óvæntu hækkun vísi­töl­unn­ar, en raf­orku­verð er nú 174,9 pró­sentum hærra en það var í ágúst 2021 og hækkar um rúm 20 pró­sent á milli mán­aða.

Auglýsing

Þessi mikla hækkun á raf­orku nær þó ekki upp í þær miklu hækk­anir sem orðið á jarð­gasi, en jarð­gas til dreif­ingar hefur hækkað í verði rúm 209 pró­sent frá því í ágúst í fyrra og það jarð­gas sem selt er til orku­vera og iðn­aðar enn meira.

Á sama tíma hafa jarð­efna­eld­neyt­is­af­urðir hækkað um 37 pró­sent frá því í ágúst í fyrra, en verð á þeim lækk­aði um 3,2 pró­sent á milli mán­aða.

Rík­is­stjórnin hyggst þjóð­nýta Uniper

Jarð­gasinn­flytj­endur í Þýska­landi hafa átt erfitt upp­dráttar und­an­farna mán­uði og hefur hið opin­bera þurft að stíga inn í til þess að fyr­ir­tækin geti haldið rekstri sínum gang­andi. Að und­an­förnu hefur verið sagt frá þreif­ingum þýsku rík­is­stjórn­ar­innar um að þjóð­nýta stærstu fyr­ir­tækin í þessum geira.

Bloomberg segir frá í dag því að þýska stjórnin sé búin að kom­ast að sam­komu­lagi um þjóð­nýt­ingu Uniper, sem er stærsti inn­flytj­andi lands­ins á jarð­gasi. Þar sem að flæði gass frá Rúss­landi hefur farið minnk­andi hefur fyr­ir­tækið verið að tæta í gegnum sjóði sína til þess að kaupa gas á mark­aði til handa þýskum við­skipta­vinum og nú er svo komið að félag­ið, sem er í eigu finnska félags­ins Fortum, er á barmi gjald­þrots.

Í frétt Bloomberg var vísað til heim­ilda um að bráða­birgða­sam­komu­lag hefði náð­st, en frétta­stofa Reuters fékk þau svör frá efna­hags­ráðu­neyti lands­ins að við­ræður væru enn í gangi. „Þegar þeim lýk­ur, munum við láta ykkur vita,“ sagði í svari ráðu­neyt­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent