Flokksþing Framsóknarflokksins samþykkti í dag tillögu Karls Garðarssonar, þingmanns flokksins, um að bónusar í bankakerfinu verði alfarið bannaðir. Karl greinir frá þessu í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni og segist afskaplega ánægður með þann mikla stuðning sem tillagan fékk. "Við eigum að vera leiðandi þjóð í þessum málum," segir Karl.
Afstaða Framsóknarflokks er í andstöðu við þá stefnu um bónusa í fjármálakerfinu sem mörkuð er í frumvarpi sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Samkvæmt frumvarpinu mega bónusgreiðslur ekki verða hærri en 25 prósent af árslaunum starfsmanna í fjármálageiranum. Samtök fjármálafyrirtækja skiluðu nýverið umsögn um frumvarpið þar sem fram kom að slík takmörkun á bónusgreiðslum væri íþyngjandi að þeirra mati. Samtökin lögðu til að evrópskur lagarammi yrði fullnýttur og fjármálafyrirtækjum gert kleift að greiða starfsmönnum sínum á bilinu 100 til 200 prósenta af árslaunum í kaupauka.
Íslandsbanki og Arion banki gjaldfærðu samtals um 835 milljónir króna vegna kaupaukagreiðslna til starfsmanna sinna á síðasta ári. Um hundrað starfsmenn fá slíkar greiðslur hjá hvorum banka fyrir sig. Arion banki gjaldfærði 477 milljónir króna í fyrram sem var 25 milljónum króna meira en árið á undan. Samtals hefur bankinn því gjaldfært tæpan milljarð króna vegna kaupaaukakerfis síns á síðustu tveimur árum. Íslandsbanki gjaldfærði 258 milljónir króna í fyrra, eða 17 milljónum krónum meira en árið 2013. Samtals nema kaupaukar til starfsmanna bankans því rúmum hálfum milljarði króna á tveimur árum.
Vert er að taka fram að í samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins er greiðslu á að minnsta kosti 40 prósent kaupauka frestað um þrjú ár.
Landsbankinn, sem er að mestu í eigu ríkisins, er ekki með árangurstengdar greiðslur. Um 1.400 núverandi og fyrrverandi starfsmenn bankans fengu hins vegar 0,78 prósent gefins árið 2013 og fá greiddan arð vegna hans. Heildargreiðslan verður um 200 milljónir króna. Gjörningurinn var liður í samkomulagi frá árinu 2009, um fjárhagsuppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Skattalegt verðmæti hlutabréfanna nam 4,7 milljörðum króna.