Framsóknarflokkurinn „mjög opinn“ fyrir því að Landsbankinn verði samfélagsbanki

Samkvæmt umræðum á Alþingi í dag eru tveir af þremur stjórnarflokkum alveg sammála um að Landsbankinn eigi áfram að verða í eigu íslenska ríkisins. Bæði Vinstri græn og Framsókn vilja skoða að bankinn verði samfélagsbanki.

Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins.
Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dóttir menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra segir að stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins sé að Lands­bank­inn verði áfram í eigu rík­is­ins og að flokk­ur­inn sé til í að skoða hug­myndir þess efnis að bank­inn verði sam­fé­lags­banki, sem jafn­vel beindi fjár­fest­ingu sér­stak­lega inn á „köld svæði“ utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þetta kom fram í svari Lilju við fyr­ir­spurn Stein­unnar Þóru Árna­dóttur þing­manns Vinstri grænna, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. Stein­unn Þóra sagði að Vinstri græn leggðu áherslu á að ríkið yrði áfram eig­andi Lands­bank­ans og að flokk­ur­inn hefði talað um að „skapa umgjörð um starf­semi sam­fé­lags­banka sem starfar sam­kvæmt umhverf­is- og sam­fé­lags­sjón­ar­mið­u­m“.

Sagði Stein­unn Þóra að hún teldi að slíkar áherslur yrðu sífellt mik­il­væg­ari í þeim breyt­ingum sem heim­ur­inn stæði frammi fyr­ir, á kom­andi miss­er­um. Spurði hún ráð­herra í kjöl­farið út í afstöðu henn­ar, og Fram­sókn­ar­flokks­ins, til eign­ar­halds eða hugs­an­legrar sölu á Lands­bank­an­um.

„Þjóð­ar­bank­inn“ Lands­bank­inn

„Það er alveg ljóst að við viljum að Lands­banki Íslands verði áfram í eigu þjóð­ar­innar og við teljum að það sé mjög mik­il­vægt. Varð­andi þær hug­myndir [...] að þróa Lands­banka Íslands frekar í átt að sam­fé­lags­banka, þá er alveg ljóst að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er mjög opinn gagn­vart því og líka að skoða svokölluð köld svæði á Íslandi, þar sem fjár­fest­ingar hafa verið jafn­vel verið minni en hér á hbsv og hvernig þjóð­ar­banki, Lands­banki Íslands, getur komið betur að þeim mál­u­m,“ sagði Lilja í svari sínu við fyr­ir­spurn Stein­unnar Þóru.

Auglýsing

Í stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins í atvinnu- og efna­hags­málum sem sam­þykkt var á flokks­þingi fyrr á þessu ári segir ekk­ert ákveðið um hvernig eign­ar­haldi í banka­kerf­inu skuli hátt­að, en þó kemur fram að Fram­sókn leggi „áherslu á hags­muni neyt­enda og skatt­greið­enda við skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og að stjórn­völd veiti fjár­mála­kerf­inu aðhald og eft­ir­lit“.

Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Hug­myndir um sam­fé­lags­banka hafa þó verið á sveimi innan Fram­sókn­ar­flokks­ins um lengri tíma, en sá sem tal­aði hvað mest fyrir þeim var fyrr­ver­andi þing­maður flokks­ins Frosti Sig­ur­jóns­son, sem var for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis í rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, þáver­andi for­manns Fram­sókn­ar.

Telur kom­inn tíma á að upp­færa hvít­bók um fjár­mála­kerfið

Stein­unn Þóra steig aftur í pontu eftir að Lilja hafði svarað og sagð­ist vona að frekara sam­tal myndi eiga sér stað um þessi efni. Hún beindi annarri spurn­ingu að Lilju, þess efnis að ef til vill væri rétt að hverfa frá því að í fjár­lögum væri kveðið á um heim­ildir til þess að selja hluti rík­is­ins í Lands­bank­an­um, en þær hafa verið til staðar í fjár­lögum und­an­farin ár.

Lilja sagði að á síð­asta kjör­tíma­bili hefði verið ráð­ist í mikla vinnu við svo­kall­aða hvít­bók um fjár­mála­kerf­ið. Þar hefðu línur verið lagðar um hvernig far­sælt væri að end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið eftir fjár­mála­hrunið árið 2008. Í hvít­bók­inni, sem kynnt var 2019, var lagt til að rík­is­sjóður myndi minnka hlut sinn í Lands­bank­anum með skrán­ingu hans á mark­að.

Lilja sagði að kom­inn væri tími á að „upp­færa þessa hvít­bók“, þar sem miklar breyt­ingar hefðu orðið á öllu umhverfi fjár­mála­stofn­ana og þá um leið að upp­færa þessa heim­ild um sölu á Lands­bank­an­um, sem mætti vera skýr­ari.

„Það er alveg á hreinu í mínum huga að Lands­bank­inn verði áfram þjóð­ar­banki og við þurfum að huga að því í sam­ein­ingu hverjar áherslur hans verða,“ sagði Lilja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent