Landspítalinn segir þörf á tæpum 2,2 milljörðum í viðbót vegna leyfisskyldra lyfja

Landspítalinn segir að áætlanir í fjárlagafrumvarpi um að setja 11,95 milljarða í leyfisskyld lyf dugi ekki til, tæplega 2,2 milljarða þurfi til viðbótar. Annars sé hætt við að ekki verði hægt að taka ný leyfisskyld lyf í notkun árið 2023.

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala.
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala.
Auglýsing

Land­spít­al­inn hefur skilað inn umsögn um fjár­laga­frum­varp árs­ins 2023, þó ekki um þann hluta frum­varps­ins sem snýr að rekstri spít­al­ans, heldur um þann fjár­laga­lið sem snýr að útlögðum kostn­aði rík­is­ins vegna leyf­is­skyldra lyfja. Land­spít­al­inn ber fjár­hags­lega ábyrgð á þeim mála­flokki og hefur gert frá 2019.

Mat spít­al­ans er að 2,16 millj­arða þurfi til við­bótar við þá 11,95 millj­arða sem í fjár­laga­frum­varp­inu segir til um að stefnt sé á að veita til mála­flokks­ins. Ekki sé raun­hæft að gera ráð fyrir ein­ungis 2 pró­senta raun­vexti leyfi­skyldra lyfja frá fyrra ári eins og gert sé í fjár­laga­frum­varp­inu, enda hafi vöxt­ur­inn verið að með­al­tali 10 pró­sent á milli ára á síð­ustu fimm ár.

Fjár­veit­ing­arnar dugi vart til að við­halda öllum lyfja­með­ferðum sem eru hafnar

„Miðað við fjár­laga­frum­varpið verður [...] ekk­ert svig­rúm fyrir lyfja­nefnd Land­spít­ala að taka ný lyf í notkun á árinu 2023 og fjár­veit­ingar munu vart nægja til að við­halda í öllum til­vikum lyfja­með­ferð sem þegar er haf­in,“ segir í umsögn spít­al­ans, sem Run­ólfur Páls­son for­stjóri Land­spít­ala skrifar und­ir.

Leyf­is­skyld lyf eru þau lyf sem ein­göngu er heim­ilt að nota að und­an­gengnu sam­þykki lyfja­nefndar spít­al­ans og eru jafnan „kostn­að­ar­söm eða vand­með­farin og krefj­ast sér­fræði­þekk­ingar og aðkomu heil­brigð­is­starfs­fólks hvort heldur er vegna gjaf­ar, eft­ir­lits með sjúk­lingi eða eft­ir­lits með notkun lyfs“ sam­kvæmt því sem segir í umsögn Land­spít­ala.

Auglýsing

Þar segir einnig að frá því spít­al­inn tók við fjár­hags­legri ábyrgð á leyf­is­skyldum lyfjum í upp­hafi árs 2019 hafi náðst að lækka kostnað umtals­vert með ýmsum hag­ræð­ing­ar­verk­efnum og Land­spít­al­inn muni halda þeirri vinnu áfram.

„Nauð­syn­legt er samt sem áður að gera ráð fyrir auknum lyfja­kostn­aði vegna nýrra kostn­að­ar­samra lyfja, nýrra með­ferða með lyfjum sem þegar eru inn­leidd og vegna fólks­fjölg­unar og vax­andi fjölda aldr­aðra. Miklar fram­farir hafa orðið í þróun lyfja til með­ferðar við ill­vígum sjúk­dómum og hefur það leitt til bættrar lif­unar sjúk­linga,“ segir í umsögn spít­al­ans.

Land­spít­ali ítrekar í umsögn sinni „mik­il­vægi þess að nægi­legt fjár­magn sé veitt í þennan mála­flokk til að geta greitt fyrir þau lyf sem nú þegar hafa verið inn­leidd og til að tryggja aðgengi lands­manna að nýjum lyfjum í takt við það sem þekk­ist í nágranna­löndum okk­ar“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent