Fréttablaðið hætt að koma inn um lúguna hjá fólki – Lestur hríðfallið og kostnaður aukist

Í fyrsta sinn síðan 2001 verður Fréttablaðið ekki borið inn á heimili fólks, heldur þarf það að nálgast blaðið á „fjölförnum stöðum“ eða lesa það rafrænt. Mikið tap hefur verið á rekstri blaðsins og lestur dregist gríðarlega saman.

Þessi sýn, Fréttablaðið í hrúgu við lúguna á heimilum  fólks, er nú liðin tíð.
Þessi sýn, Fréttablaðið í hrúgu við lúguna á heimilum fólks, er nú liðin tíð.
Auglýsing

Frétta­blað­ið, sem dreift hefur verið inn á heim­ili fólks frá því að það var sett á fót árið 2001, fyrir rúm­lega tveimur ára­tug­um, mun ekki gera það leng­ur. Frá og með morg­un­deg­in­um  verður blaðið aðgengi­legt á 120 fjöl­­förnum stöðum á höf­uð­­borg­ar­­svæð­inu, á Suð­ur­­­nesjum, Ár­­borg­ar­­svæð­inu, Akra­­nesi, Borg­ar­­nesi og á Akur­eyri og á raf­­rænu formi.

Í frétt á vef blaðs­ins er haft eftir Jóni Þór­is­syni, for­stjóri Torgs útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins, að á­stæða þess­arar breyt­ingar sé marg­þætt. „Í fyrsta lagi höfum við hjá Torgi haft vax­andi á­hyggjur af því að dreif­ing blaðs­ins væri ekki í sam­ræmi við þau mark­mið sem við höfum gengið út frá og að dreif­ing­ar­­ferl­inu fylgdi ó­þarfa sóun. Það er í takti við vax­andi um­hverf­is­vit­und að lág­­marka kol­efn­is­­spor í okkar starf­­semi. Við bæt­ist svo að dreif­ing blaðs til tug­­þús­unda heim­ila er ó­hemju kostn­að­ar­­­söm og reikna má með að kostn­aður á ný­­byrj­uðu ári hefði orðið yfir einn millj­arður króna.“

Jón segir við blaðið að full­­reynt hafi verið að breyta dreif­ing­ar­­samn­ingi við Póst­­dreif­ingu, sem dreift hefur blað­inu um ára­bil.„Þessi samn­ingur var þegar í gildi þegar nú­ver­andi eig­endur komu að fé­lag­inu og þrátt fyrir marg­í­trek­aðar til­­raunir reynd­ist ekki flötur á að semja um að losna undan þeirri skuld­bind­ingu. Þannig var allt svig­­rúm í út­­gáf­unni fjar­lægt, ein­taka­­fjöldi fast­­settur sem og fjöldi út­­gáfu­daga og ekki mög­u­­legt að koma til móts við um­hverf­is­­sjón­ar­mið og sporna við sóun. Því er ekki að leyna að um eins millj­arðs króna ár­­legur dreif­ing­ar­­kostn­aður var þung­­bær fyrir rekst­ur­inn.“ Frétta­blað­inu var dreift í 75 þús­und ein­tökum á dag.

Auglýsing
Breytingarnar kom ekki að öllu leyti á óvart en í byrjun sept­em­ber sagði Jón í við­tali við Frétta­blaðið að útgef­andi þess þyrfti „að horfast í augu við það að á ein­hverjum tíma­­punkti í fram­­tíð­inni mun Frétta­­blað­ið, sem ber ægis­hjálm yfir aðra miðla hér á landi hvað varðar útbreiðslu og lest­­ur, hætta að koma út á prent­i.“ 

Lest­ur­inn dalað hratt

Lestur Frétta­­­blaðs­ins mælist nú 28,2 pró­­­sent í heild, sam­­kvæmt nýj­­ustu lestr­­ar­­tölum Gallup. Hann fór í fyrsta sinn undir 30 pró­­­sent í jan­úar í fyrra og hefur haldið áfram að dala í hverjum mán­uði síðan þá. Alls hefur lest­­­ur­inn meira en helm­ing­­­ast á einum ára­tug. 

Frétta­blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­­­­­festu á dag­­­­­blaða­­­­­mark­aði með til­­­­­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­­­­­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust til að mynda 65,2 pró­­­­­sent lands­­­­­manna lesa Frétta­­­­­blað­ið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­­­­­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­­­­­sent.

Mestur er sam­­­drátt­­­ur­inn hjá yngri les­end­­­um. Hjá ald­­­ur­s­hópnum 18 til 49 ára mælist hann nú 17,9 pró­­­sent eftir að hafa farið undir 20 pró­­­sent í fyrsta sinn í apríl síð­­­ast­liðn­­­­­um. Fyrir tólf árum lásu 64 pró­­­sent lands­­­manna í þessum ald­­­ur­s­hópi Frétta­­­blað­ið. Lest­­­ur­inn í dag er ein­ungis 28 pró­­­sent af því sem hann var hjá full­orðnum undir fimm­tugu vorið 2010. 

Mik­ill tap­rekstur

Frétta­­blaðið er í eigu útgáfu­­­­fé­lags­ins Torgs og er flagg­­­­skip þess félags. Félagið rekur einnig vef­miðl­ana dv.is, eyj­an.is, press­an.is, 433.is, hring­braut.is, fretta­bla­did.is og sjón­­­­­varps­­­­­stöð­ina Hring­braut.

Útgáfu­­­­­­dögum Frétta­­­blaðs­ins var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mán­u­­­­­­dags­út­­­­­­­­­­­gáfu blaðs­ins.

Auglýsing
Torg er í eigu tveggja félaga, Hof­­­­­­garða ehf. og HFB-77 ehf. Eig­andi fyrr­­­­­­nefnda félags­­­­­­ins er fjár­­­­­­­­­­­fest­ir­inn Helgi Magn­ús­­­­­­son og hann á 82 pró­­­­­­sent í því síð­­­­­­­­­­­ar­­­­­­nefnda. Helgi er auk þess stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­for­­­­­­maður Torgs. Aðrir eig­endur þess eru Sig­­­­­­urður Arn­gríms­­­­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­­­­skipta­­­­­­fé­lagi Helga til margra ára, áður­­­nefndur Jón Þór­is­­­­­­son, fyrr­ver­andi rit­­­­­­stjóri Frétta­­­­­­blaðs­ins og núver­andi fram­­kvæmda­­stjóri Torgs, og Guð­­­­­­­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­­­­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­­­­­­­varps­­­­­­­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­­­­­­­kvæmda­­­­­­­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­­­­­­­mála og dag­­­­­­­­­­­skrár­­­­­­­­­­­gerðar hjá Torg­i. Hlutur ann­­­­­arra en Helga er hverf­andi.

Hóp­­­­­ur­inn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaup­verðið var trún­­­­­­að­­­­­­ar­­­­­­mál en í árs­­­­­­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­­­­­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­­­­­­ins.  

Tap af reglu­­legri starf­­semi fjöl­miðla­­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs var 325,7 millj­­ónir króna á árinu 2021,, sam­­kvæmt árs­­reikn­ingi félags­­ins. Heild­­ar­tapið var 252,5 millj­­ónir króna en þar munar mestu um að tekju­skattsinn­­eign vegna taps árs­ins var bók­­færð sem tekjur upp á 73 millj­­ónir króna. Upp­­safnað skatta­­legt tap nýt­ist ekki nema að fyr­ir­tæki skila hagn­að­i. 

Á árunum 2019 og 2020 var millj­­­arðs króna tap af reglu­­­legri starf­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Sam­an­lagt hefur því verið rúm­­lega 1,3 millj­­arða króna tap af henni á þremur árum. Heild­­ar­tap, þegar búið er að taka til­­lit til þeirrar tekju­skattsinn­­eignar sem skap­að­ist vegna taps­ins á þessum árum, var tæp­­lega 1,1 millj­­arður króna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent