Fyrrum fjármálastjóri RÚV: nútíðarvandi, ekki fortíðarvandi

R--v-2.jpg
Auglýsing

Fjár­hags­vand­ræði Rík­is­út­varps­ins (RÚV) er nútíð­ar­vandi, ekki for­tíð­ar­vandi og stað­hæf­ingar núver­andi fram­kvæmd­ar­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins um annað eru rang­ar. Ef hag­ræð­ing­ar­að­gerðir Páls Magn­ús­son­ar, fyrrum útvarps­stjóra, sem lagt var af stað með í nóv­em­ber 2013 hefðu verið fram­kvæmdar til fulln­ustu hefði verið komið á jafn­vægi í rekstri RÚV á yfir­stand­andi rekstr­ar­ári og ekk­ert gjald­fall verið á skuld­um. Þetta segir Bjarni Krist­jáns­son, fyrrum fjár­mála­stjóri RÚV, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Bjarni hætti störfum hjá RÚV í vor eftir um sjö ára starf hjá fyr­ir­tæk­inu.

Greiðslu­vandi RÚV hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu eftir að fyr­ir­tækið gat ekki greitt af skulda­bréfi sem var á gjald­daga 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. Í til­kynn­ingu sem RÚV sendi frá sér í kjöl­farið var eft­ir­far­andi haft eftir Magn­úsi Geir Þórð­ar­syni, útvarps­stjóra: „Það er ljóst að við erum ekki enn laus við þann for­tíð­ar­vanda sem RÚV hefur lengi glímt við. Sjálf­stæð fjár­hags­leg úttekt stað­festir að RÚV er of mikil og það eru von­brigði að sjá að rekstur RÚV var ekki kom­inn í jafn­vægi eftir nið­ur­skurð­ar­að­gerðir fyrri fram­kvæmda­stjórn­ar“.

Segir for­svars­menn RÚV koma sök á Pál



Í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag hafnar Bjarni Krist­jáns­son,­fyrrum fjár­mála­stjóri RÚV, því að um for­tíð­ar­vanda sé að ræða. Þar segir Bjarni: „Und­an­farnar vikur hafa for­svars­menn RÚV freistað þess að koma sök á fjár­hags­vanda RÚV á fyrr­ver­andi útvarps­stjóra, Pál Magn­ús­son. Umtals­verður tap­rekstur hafi verið hjá félag­inu árum saman og skuldir hrann­ast upp. Þá hafi síð­ustu hag­ræð­ingar Páls ekki dugað til. Þessar stað­hæf­ingar eru allar rang­ar.“

Hann rekur síðan helstu tölur úr rekstri RÚV und­an­farin ár og segir þær sýna að sá vandi sem RÚV standi frammi fyrir þessa dag­ana sé „því nútíð­ar­vandi en ekki for­tíð­ar­vand­i“. Bjarni segir Pál Magn­ús­son, fyrrum útvarps­stjóra og sam­starfs­mann hans til margra ára, hafa tek­ist á við enda­lausa nið­ur­skurði ár eftir ár en alltaf komið rekstr­inum strax í jafn­vægi. „Það er því eng­inn vafi að hefðu þær hag­ræð­ing­ar­að­gerð­ir, sem Páll skipu­lagði og var byrj­aður á í nóv­em­ber 2013 - og stjórnin með núver­andi útvarps­stjóra inn­an­borðs sam­þykkti - verið fram­kvæmdar til fulln­ustu hefði aftur verið komið á jafn­vægi í rekstri félags­ins á yfir­stand­andi rekstr­ar­ári - og ekk­ert gjald­fall orðið á skuld­um. Stjórnin og núver­andi útvarps­stjóri kusu hins vegar að fylgja fram­kvæmd­inni ekki eftir og efndu þar að auki til mik­illa útgjalda sem ekki voru á áætl­un. Veldur sá er á held­ur,“ segir Bjarni að lokum í grein sinni.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None