Fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins tekur við starfi forstjóra Torgs

Jón Þórisson, sem var ritstjóri Fréttablaðsins um skeið og á lítinn hlut í útgáfufélagi þess, er snúinn aftur til starfa hjá félaginu, nú sem forstjóri. Fráfarandi forstjóri sagði upp í nóvember.

Fréttablaðið
Auglýsing

Jón Þór­is­son, sem var rit­stjóri Frétta­blaðs­ins frá haustið 2019 og fram í ágúst í fyrra, er kom­inn aftur til starfa hjá útgáfu­fé­lagi blaðs­ins, Torgi. Hann hefur tekið til starfa sem for­stjóri útgáfu­fé­lags­ins, sem heldur einnig úti DV, Hring­braut og tengdum miðl­um. Jón á lít­inn hluti í Torgi, sem er ann­ars að uppi­stöðu í eigu fjár­fest­is­ins Helga Magn­ús­son­ar.

Á vef Frétta­blaðs­ins segir að Jón taki við for­stjóra­starf­inu af Birni Víglunds­syni, sem hefur gegnt því starfi frá því í sept­em­ber 2020. Í frétt­inni kemur fram að Björn hafi sagt upp störfum í nóv­em­ber í fyrra en verði fyr­ir­tæk­inu áfram innan handar næstu mán­uði.

Hafa sett 1,5 millj­arða króna í Torg

Jón var hluti af hópi fjár­festa sem keypti sig inn í rekstur Torgs á árinu 2019. Alls hefur sá hóp­ur, sem leiddur er af Helga Magn­ús­syni, sett 1,5 millj­arða króna í kaup á Torgi og hluta­fjár­aukn­ingar á því tveimur og hálfu ári sem liðið er frá því að aðkoma þeirra hófst. Þeir fjár­munir hafa af uppi­stöðu komið frá Helga sem á tæp­lega 93 pró­sent í Torgi. Hann setti síð­ast 300 millj­ónir króna inn í rekst­ur­inn í byrjun árs, en Kjarn­inn greindi frá því í gær að Helgi eigi á sjö­unda millj­arð króna í eigið fé inni í tveimur félög­um, eftir að hafa selt sex pró­sent hlut í Bláa lón­inu í fyrra­haust.

Auglýsing
Jón á tvö pró­sent hlut í félag­inu, Guð­mundur Örn Jóhanns­son á 1,2 pró­sent og Sig­urður Arn­gríms­son á fjögur pró­sent. 

Þegar Jón hætti sem rit­stjóri Frétta­blaðs­ins í fyrra­sumar tók Sig­mundur Ernir Rún­ars­son við starf­in­u.  Þá sagð­ist hann ætla að fara að snúa sér að öðrum verk­efn­um. 

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­­em­ber í fyrra að rekstr­­­ar­tap Torgs, hafi verið 688,7 millj­­­ónir króna á árinu 2020. Árið áður var rekstr­­­ar­tap félags­­­ins 197,3 millj­­­ónir króna og því nam sam­eig­in­­­legt rekstr­­­ar­tap þess á tveimur árum 886 millj­­­ónum króna. 

Þegar vaxta­­­gjöldum vegna lána sem Torg hefur þurft að borga af og geng­is­mun er bætt við kemur í ljós að tap af reglu­­­legri starf­­­semi fyrir skatta var um 750 millj­­­ónir króna á síð­­­asta ári og rúm­­­lega einn millj­­­arður króna á tveimur áður.

Minna upp­­lag og lestur á leið undir 30 pró­­sent

Flagg­­­skipið í útgáfu Torgs er Frétta­­­blað­ið. Útgáfu­­­dögum þess var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mán­u­­­dags­út­­­­­gáfu blaðs­ins. Auk þess hefur dreif­ing frí­­blaðs­ins dreg­ist saman úr 80 í 75 þús­und ein­tök á dag. 

Lestur Frétta­­­blaðs­ins mæld­ist 30,1 pró­­­sent í des­em­ber­. Hann hefur dalað jafnt og þétt und­an­farin ár en í apríl 2007 var hann 65,2 pró­­­sent og hélst yfir 50 pró­­­sent þangað til í des­em­ber 2015. Síð­­­sum­­­­­ars 2018 fór lest­­­ur­inn svo undir 40 pró­­­sent í fyrsta sinn og stefnir nú undir 30 pró­­­sent á næstu mán­uð­um, en frá byrjun árs 2018 hefur lestur Frétta­­­­blaðs­ins auk­ist á milli mán­aða í sex skipti en dalað 39 sinn­­­­um.

Í ald­­­­ur­s­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­­­­ur­inn nú 20,9 pró­­­­sent og er nú um þriðj­ungur þess sem hann var fyrir tólf árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent