Bjarni Halldór Janusson, stjórnmálafræðingur og fyrrum varaþingmaður, hefur tekið til starfa sem nýr aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þingmanns og formanns Viðreisnar. Frá þessu er greint í tilkynningu frá flokknum.
Bjarni hefur tekið þátt í starfi Viðreisnar frá árinu 2014 og var meðal fyrstu stofnenda flokksins og fyrsti forseti ungliðahreyfingar Viðreisnar. Bjarni hlaut kjör sem varaþingmaður flokksins í Suðvesturkjördæmi árið 2016 og tók sæti á þingi í tvígang árið 2017 og varð þá yngsti sitjandi þingmaður frá upphafi, en það met hefur síðan verið slegið.
Bjarni er með prófgráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, diplómu á meistarastigi til kennsluréttinda frá sama skóla og hefur einnig lokið meistaranámi í stjórnmálaheimspeki frá Háskólanum í York í Bretlandi.
Bjarni starfaði áður í byggingariðnaði sem fjármála- og skrifstofustjóri hjá pípulagnaverktaka og einnig við borgaralega fermingarfræðslu í aukaverkum. Hann segist spenntur fyrir komandi tímum og er þakklátur fyrir að snúa aftur til starfa á vettvangi stjórnmála.
„Það eru ákveðin forréttindi að geta starfað við það sem ég hef ástríðu fyrir. Ég hlakka til komandi tíma og þó að starfið sé krefjandi er það ekki vandamál þegar áhuginn mun nýtast mér sem góður drifkraftur,“ er haft eftir Bjarna í tilkynningu frá Viðreisn.