Fyrst af þeim sem fæðst hafa á 21. öldinni til að taka sæti á Alþingi

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir varð í dag yngst til að taka sæti á þingi, er hún kom inn sem varaþingmaður fyrir hönd Pírata. Hún er fædd árið 2002 og er fyrsta manneskjan sem fædd er eftir aldamót til að taka sæti á Alþingi.

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir er fædd árið 2002. Hún varð í dag yngst til að taka sæti á Alþingi, 19 ára og 240 daga gömul.
Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir er fædd árið 2002. Hún varð í dag yngst til að taka sæti á Alþingi, 19 ára og 240 daga gömul.
Auglýsing

Tveir vara­þing­menn Pírata, þær Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir og Lenya Rún Taha Karim, tóku sæti á Alþingi í dag fyrir þing­menn­ina Björn Leví Gunn­ars­son og Andrés Inga Jóns­son. Gunn­hildur Fríða er 19 ára og 240 daga gömul og því yngri en nokkur vara­þing­maður sem hefur sest á þing til þessa – og fyrsta mann­eskjan sem fædd er á 21. öld­inni sem tekur sæti á þingi, en hún fædd­ist árið 2002.

Lenya Rún er 22 ára og 9 daga göm­ul, fædd 1999 og er því fimmta yngsta mann­eskjan sem tekur sæti á Alþingi sem vara­mað­ur, sam­kvæmt lista sem yfir það er hald­inn á vef Alþing­is.

Lenya Rún Taha Karim tók sæti á þingi í dag. Mynd: Skjáskot úr útsendingu Alþingis.

Í kosn­ing­unum í lok sept­em­ber var um tíma útlit fyrir að hún yrði upp­bót­ar­þing­maður Pírata í Reykja­vík og þá um leið sú yngsta til að ná kjöri til Alþingis frá upp­hafi, en eftir að atkvæði voru talin á ný í Norð­vest­ur­kjör­dæmi varð það ekki raun­in.

Auglýsing

Áður en Gunn­hildur Fríða varð yngsti vara­mað­ur­inn á Alþingi frá upp­hafi í dag hafði Karl Lilj­en­dal Hólm­geirs­son getað státað af því að hafa verið yngstur er hann tók sæti á þingi, en hann fædd­ist árið 1997 og kom inn á þing fyrir Mið­flokk­inn árið 2018, þá 20 ára og 355 daga gam­all.

Yngstu vara­þing­menn sög­unn­ar:

  • Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dótt­ir, fædd 2002, kemur á þing 2021, aldur 19 ár og 240 dag­ar.
  • Karl Lilj­en­dal Hólm­geirs­son, fæddur 1997, kemur á þing 2018, aldur 20 ár og 355 dag­ar.
  • Bjarni Hall­dór Jan­us­son, fæddur 1995, kemur á þing 2017, aldur 21 ár og 142 dag­ar.
  • Víðir Smári Pet­er­sen, fæddur 1988, kemur á þing 2010, aldur 21 ár og 328 dag­ar.
  • Lenya Rún Taha Karim, fædd 1999, kemur á þing 2021, aldur 22 ár og 9 dag­ar.
  • Lilja Rann­veig Sig­ur­geirs­dótt­ir, fædd 1996, kemur á þing 2018, aldur 22 ár og 84 dag­ar.
  • Sig­urður Magn­ús­son, fæddur 1948, kemur á þing 1971, aldur 23 ár og 167 dag­ar.
  • Ásta Guð­rún Helga­dótt­ir, fædd 1990, kemur á þing 2014, aldur 24 ára og 34 dag­ar.
  • Helgi Selj­an, fæddur 1934, kemur á þing 1958, aldur 24 ár og 37 dag­ar.
  • Sig­ríður María Egils­dótt­ir, fædd 1993, kemur á þing 2018, aldur 24 ár og 132 dag­ar.
  • Einar K. Guð­finns­son, fæddur 1955, kemur á þing 1980, aldur 24 ár og 134 dag­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent