Alvotech, systurfyrirtæki Alvogen, mun ráða í fimmtíu fyrstu störfin við nýtt hátæknisetur í Vatnsmýrinni á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alvogen. „Nú er auglýst eftir 35 háskólamenntuðum Íslendingum með raunvísindabakgrunn og fyrri hluta næsta árs verður ráðningum haldið áfram. Búast má við því að um 200 ný störf verði til í tengslum við starfsemina á næstu árum,“ segir í tilkynningunni, en störfin eru auglýst á vef Alvogen.
Í nóvember í fyrra hófust framkvæmdir við nýtt hátæknisetur sem verður um þrettán þúsund fermetrar að stærð, fullbúið. Innan setursins, sem ákveðið var að ráðast í á grundvelli samkomulags milli Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar, verður unnið að þróun og framleiðslu líftæknilyfja og áætlað er að húsið verði tekið í notkun í ársbyrjun 2016, að því er segir í tilkynningu.
„Sex líftæknilyf eru nú í þróun hjá Alvotech í samvinnu við erlenda samstarfsaðila og fyrstu lyf fyrirtækisins fara á markað árið 2018 þegar einkaleyfi þeirra renna út. Lyfin eru háþróuð stungulyf og m.a. notuð við krabbameini og gigtarsjúkdómum. Sala frumlyfjanna á árinu 2013 á heimsvísu var um 15 milljarðar evra. Alvotech mun sjá um þróun og framleiðslu lyfjanna en Alvogen og önnur lyfjafyrirtæki munu sjá um markaðssetningu þeirra,“ segir í tilkynningunni.
Róbert Wessman, stjórnarformaður og stofnandi Alvotech, segir það fagnaðarefni að aukinn kraftur hafi verið settur í hátæknisetrið. „Það er ánægjulegt að geta byggt upp starfsemi Alvotech hér á landi og að Íslendingar hafi tækifæri til þess að gegna lykilhlutverki í að móta nýtt lyfjafyrirtæki,“ segir Róbert.
Heildarfjárfesting Alvotech á sviði líftæknilyfja er um 500 milljónir evra, um 75 milljarðar króna, á næstu árum, þar með talin fjárfesting á fullbúnu hátæknisetri. Það er um átta milljarða framkvæmda. Stærsti hluti fjárfestingar er vegna þróunar- og rannsóknarkostnaðar og klínískra rannsókna. ÞG verktakar byggja húsið í samvinnu við PK arkitekta, Eflu verkfræðistofu og Lagnatækni. Alls munu skapast um 400 ársverk á framkvæmdatímanum, að því er segir í tilkynningu.
Andreas Herrman, forstjóri Alvotech.
Andreas Herrman, forstjóri Alvotech, segir mikil tækifæri vera að skapast í líftækniiðnaði meðal annars vegna þess að einkaleyfi margra líftæknilyfja muni renna út á næstu árum. „Við sjáum mikil tækifæri í uppbyggingu líftæknifyrirtækja á næstu árum. Sala líftæknilyfja er í miklum vexti og árlegt söluverðmæti líftæknilyfja sem renna af einkaleyfi til ársins 2020 er um 100 milljarðar bandaríkjadala. Það er því eftir miklu að slægjast. Við stefnum að því að vera í hópi fyrstu fyrirtækja á markað með okkar lyf þegar einkaleyfi renna út árið 2018 og síðar. Íslendingar verða í lykilhlutverkum í uppbyggingu Alvotech og eru góð blanda við öfluga erlenda stjórnendur sem nú þegar hafa verið ráðnir,“ sagði Herrman.