Ungverjar mótmæla harðlega internet-skatti stjórnvalda

000-DV1897329-1.jpg
Auglýsing

Um eitt hund­rað þús­und Ung­verjar söfn­uð­ust saman í höf­uð­borg lands­ins, Buda­pest, í gær til að mót­mæla fyr­ir­hug­uðum skatti stjórn­valda á gagna­magn á inter­net­inu. Þá vildi mann­söfn­uð­ur­inn sömu­leiðis láta í ljós óánægju sína með for­sæt­is­ráð­herr­ann Viktor Orban, ein­ræð­istil­burði hans og stefnu rík­is­stjórn­ar­innar sem hneig­ist í þá átt minnka sam­skipti við aðrar þjóðir Evr­ópu­sam­bands­ins. Reuters greinir frá mál­inu.

Mót­mælin í gær voru þau stærstu síðan Viktor Orban komst til valda árið 2010, en þrátt fyrir að hafa verið sökuð um ein­ræð­istil­burði í valda­tíð sinni, var rík­is­stjórn hans end­ur­kjörin með miklum yfir­burðum á síð­asta ári.

Í tíð sinni hefur rík­is­stjórnin skatt­lagt sér­stak­lega banka­kerf­ið, smá­söl­una, og orku- og fjar­skipta­geir­ann til að halda rík­is­fjár­mál­unum á áætl­un, en sam­hliða hefur hún stefnt í hættu hagn­aði í ýmsum kimum hag­kerf­is­ins og gert alþjóð­lega fjár­festa tauga­ó­styrka.

Auglýsing

Áform stjórn­valda um sér­staka skatt­lagn­ingu á gagna­magn á inter­net­inu komst í hámæli í Ung­verja­landi í síð­ustu viku. Strax í kjöl­farið mót­mæltu fjar­skipta­fyr­ir­tækin áformun­um, sem og við­skipta­vinir þeirra sem sögðu skatt­lagn­ing­una ólýð­ræð­is­lega.

Mót­mælin í gær voru skipu­lögð í gegnum Face­book. Mann­fjöld­inn ark­aði í gegnum mið­borg Buda­pest og krafð­ist þess að horfið yrði frá skatt­lagn­ing­unni og að for­sæt­is­ráð­herra lands­ins færi frá völd­um. Margir mót­mæl­endur héldu á lofti kröfu­skiltum með áletr­un­inni "ER­R­OR," og "Hversu oft ætlið þið að féfletta okk­ur?"

Inter­net-skattur lækk­aður eftir fyrri mót­mæli



Stjórn­völd í Ung­verja­landi ætl­uðu í upp­hafi að skatt­leggja hvert gíga­bæt á 150 ung­versk for­int, eða sem sam­svarar 75 íslenskum krón­um. Eftir útreikn­inga grein­ing­ar­að­ila, sem sýndu fram á að skatt­lagn­ingin myndi skila rík­is­sjóði Ung­verja­lands meiru en sem nemur hagn­aði fjar­skipta­geirans, og mót­mæli á sunnu­dag­inn sem þús­undir manna tóku þátt í, ákváðu stjórn­völd að setja sér­stakt þak á inter­net-skatt­inn; 700 for­ints á ein­stak­linga (350 ísk. krón­ur) og 5.000 for­ints á fyr­ir­tæki (2.500 ísk. krón­ur).

Þessi ákvörðun gerði engu að síður lítið til að draga úr reiði Ung­verja, eins og mót­mælin í gær bera með sér.

Rík­is­stjórn Orban hefur vísað á bug ásök­unum um ólýð­ræð­is­legar áhersl­ur, og segir að mark­mið hennar sé að ­deila skatt­byrði rík­is­ins jafnt á alla geira efna­hags­lífs­ins. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur sömu­leiðis gagn­rýnt fyr­ir­hug­aðan inter­net-skatt.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None