Gagnrýna 13,3 milljóna húsnæðisbækling á tímum niðurskurðar

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks í borgarráði gagnrýna að borgin hafi varið 13,3 milljónum króna í útgáfu rits um húsnæðisuppbyggingu á sama tíma og samþykkt hafi verið að skera niður bókakaup grunnskóla og opnunartíma félagsmiðstöðva.

Reykjavíkurborg dreifði 64 blaðsíðna riti um uppbyggingu íbúða í borginni í 60.500 eintökum í síðasta mánuði.
Reykjavíkurborg dreifði 64 blaðsíðna riti um uppbyggingu íbúða í borginni í 60.500 eintökum í síðasta mánuði.
Auglýsing

Kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar við útgáfu og dreif­ingu bæk­lings um upp­bygg­ingu íbúða nam rúmum 13,3 millj­ónum króna, án virð­is­auka­skatts, sam­kvæmt því sem fram kemur í svari skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara við fyr­ir­spurn borg­ar­ráðs­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Svarið var lagt fram á fundi borg­ar­ráðs í gær, og gagn­rýndu flokk­arnir sem eru í minni­hluta í borg­ar­stjórn útgáfu bæk­lings­ins og settu í sam­hengi við þær nið­ur­skurð­ar­að­gerðir sem nýlega hafa verið sam­þykktar í borg­inni.

Bóka­kaup grunn­skóla og félags­mið­stöðvar

„Bæk­lingar af þessu tagi eru aug­ljóst tæki­færi til nið­ur­skurðar sem meiri­hlut­inn hefur van­nýtt. Til sam­an­burðar hefur meiri­hlut­inn ákveðið að skera niður bóka­kaup til bóka­safna grunn­skól­anna sem nemur 9 millj­ónum árlega. Hefur nið­ur­skurð­ar­til­lagan vakið mikla reiði meðal skóla­stjórn­enda. Betur hefði farið á því að fjár­festa í bókum fyrir grunn­skóla­börn heldur en bæk­lingi með upp­lýs­ingum sem vel mætti gera aðgengi­legar á vef Reykja­vík­ur­borg­ar,“ sagði í bókun borg­ar­ráðs­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks vegna máls­ins.

Auglýsing

Borg­ar­ráðs­full­trúi Sós­í­alista­flokks Íslands benti svo á að útgáfa rits­ins kost­aði meira en Reykja­vík­ur­borg sæi fram á að spara með því að loka félags­mið­stöðvum fyrir ung­linga 15 mín­útum fyrr á næsta ári, en sparn­að­ur­inn við þá aðgerð er áætl­aður tæpar 10 millj­ón­ir.

„Nær hefði verið að skera niður við gerð þessa rits og tryggja þess í stað að ung­lingar hafi gott athvarf í formi félags­mið­stöðva en starfs­fólk og þau sem koma að starfi mið­stöðv­anna hafa gagn­rýnt þessar aðgerðir um að loka fyrr,“ segir í bókun full­trúa Sós­í­alista­flokks­ins.

64 blað­síðna rit í 60.500 ein­tökum

Bæk­lingur borg­ar­innar var prent­aður í alls 60.500 ein­tök­um, en ritið var 64 blað­síð­ur. Sam­kvæmt svari skrif­stofu borg­ar­stjóra var ritið unnið af almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu Athygli, sem hefur unnið sam­bæri­leg rit fyrir borg­ina und­an­farin ár. Fyrir sína vinnu fékk Athygli tæpar 5 millj­ónir króna án vsk., fyr­ir­tækið Rit­form sá um hönnun og umbrot fyrir tæpar 1,7 millj­ónir króna án vsk., Ísa­fold­ar­prent­smiðja prent­aði bæk­ling­ana fyrir 4,4 millj­ónir án vsk. og Póst­dreif­ing dreifði bæk­ling­unum um borg­ina fyrir um 2,3 millj­ónir án vsk.

Í svari skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara segir að með útgáfu rits­ins sé „verið að miðla upp­lýs­ingum um mik­il­vægt mál­efni fyrir borg­ar­bú­a“.

„Reykja­vík­ur­borg hefur um ára­bil leit­ast við að greina stöð­una á hús­næð­is­mark­aðnum og hverjar búsetu­óskir íbúa borg­ar­inn­ar, höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og lands­byggð­ar­innar eru enda ríkir sam­keppni á milli sveit­ar­fé­laga lands­ins um íbúa. Kann­anir sem Reykja­vík­ur­borg hefur látið fram­kvæma á búsetu­óskum hafa jafnan sýnt að íbúar nágranna­sveit­ar­fé­laga og lands­byggð­ar­innar hafa áhuga á að búa í höf­uð­borg­inni. Allt eru þetta upp­lýs­ingar sem eiga erindi til borg­ar­búa og verður ekki síður ljóst ef málin eru sett í sam­hengi við núver­andi stöðu. Upp­færð Hús­næð­is­á­ætlun haustið 2022 telur yfir 26.000 íbúðir en til sam­an­burðar er heild­ar­fjöldi íbúða­ein­inga yfir 58.000 í borg­inni í dag,“ segir í svari skrif­stof­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent