Gatan rudd fyrir Uber og Lyft

Drög að frumvarpi til laga um leigubifreiðar hefur verið birt á samráðsgátt stjórnvalda og til stendur að leggja það fram í fjórða sinn. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu sem munu auðvelda farveitum að bjóða þjónustu sína hér á landi.

Vonir standa til að frumvarpið, verði það samþykkt, muni opna dyrnar fyrir farveitur á leigubílamarkaði.
Vonir standa til að frumvarpið, verði það samþykkt, muni opna dyrnar fyrir farveitur á leigubílamarkaði.
Auglýsing

Til stendur að leggja fram að nýju stjórn­ar­frum­varp inn­við­a­ráð­herra, Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, um leigu­bif­reiða­akst­ur. Þetta er í fjórða sinn sem frum­varpið er lagt fram en það tekur í þetta sinn nokkrum breyt­ing­um. Málið gekk til umhverf­is- og sam­göngu­nefndar eftir fyrstu umræðu í þing­inu og skil­aði nefndin áliti með breyt­ing­ar­til­lögum þann 14. júní. Málið gekk á end­anum ekki til ann­arrar umræðu og þar við sat. Frum­varpið sem nú hefur verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda tekur til­lit til nefnd­ar­á­lits­ins og breyt­ing­ar­til­lögum nefnd­ar­inn­ar.

Skil­yrði um starfs­stöð hér á landi til að geta fengið útgefið rekstr­ar- eða starfs­leyfi leigu­bif­reiða­stöðvar hér á landi hefur verið fellt brott úr frum­varp­inu. Þar að auki verður hægt að veita bæði ein­stak­lingum og lög­að­ilum rekstr­ar­leyfi, nái frum­varpið fram að ganga.

„Sér­stak­lega er nú tekið fram að sé samið fyrir fram um gjald fyrir ekna ferð megi gjaldið vera ýmist áætlað eða end­an­legt. Eftir sem áður skal verð­skrá og þær for­sendur sem umsamið gjald bygg­ist á vera aðgengi­legar við­skipta­vin­i,“ segir á vef stjórn­ar­ráðs­ins um breyt­ingar sem gerðar hafa verið á frum­varp­inu. Líkt og í fyrri frum­vörpum er kveðið á um að lög­giltir gjald­mælar skuli vera í öllum leigu­bílum sem rukka gjald sem tekur mið af ekinni vega­lengd eða þeim tíma sem ferðin tek­ur, nema ef ferð er seld fyrir fyrir fram umsamið áætlað eða end­an­legt heild­ar­gjald.

Auglýsing

Þurfa að full­nægja sömu skil­yrðum og leigu­bif­reiða­stöðvar

Vonir standa til að far­veitur á borð við Uber og Lyft muni geta haslað sér völl hér á landi, nái frum­varpið fram að ganga. Í drög­unum seg­ir: „Von­ast er til að með afnámi fjölda­tak­mark­ana á tak­mörk­un­ar­svæðum og ítar­legra kvaða um nýt­ingu leyf­is, auk und­an­þágu frá skyldu til að vera með gjald­mæli þegar þjón­usta er seld gegn fyrir fram umsömdu föstu gjaldi, skap­ist skil­yrði til að veita fjöl­breytt­ari þjón­ustu með leigu­bif­reið­um, þar á meðal þjón­ustu á borð við þá sem veitt er af þekktum far­veitum erlend­is.“

Til þess að svo megi verða þurfa far­veit­urnar engu að síður að full­nægja öllum skil­yrðum sem leigu­bif­reiða­stöðvum er gert að full­nægja hér á landi. Til þess þurfa þær að hafa fyr­ir­svars­mann sem hefur lög­heim­ili á evr­ópska efna­hags­svæð­inu, við­eig­andi starfs­hæfni og gott orð­spor. Þar að auki þurfa leigu­bif­reiða­stöðvar að hafa full­nægj­andi fjár­hags­stöðu en það atriði er nánar skil­greint í reglu­gerð.

Með „sama hætti þurfa bíl­stjórar sem bjóða þjón­ustu sína hjá far­veitum að upp­fylla skil­yrði leigu­bif­reiða­lög­gjaf­ar­innar og hafa gilt rekstr­ar­leyfi og eftir atvikum atvinnu­leyf­i,“ segir í drög­un­um.

Stöðv­ar­skylda og fjölda­tak­mark­anir munu heyra sög­unni til

Ein af þeim breyt­ingum sem boðuð er í frum­varp­inu, líkt og í eldri gerðum þess, er afnám fjölda­tak­mark­ana á leigu­bif­reið­um. Eins og staðan er í dag eru tak­mörk sett á fjölda leigu­bíla­leyfa á þremur tak­mörk­un­ar­svæð­um. Það fyrsta nær til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Suð­ur­nesja, annað er á Akur­eyri og það þriðja í Árborg. Á þessum svæðum eru leigu­bíl­stjórar skyldugir til þess að starfa fyrir leigu­bif­reiða­stöð og tak­mörk eru sett á hversu margir leigu­bílar mega keyra á svæð­un­um. Til stendur að afnema bæði stöðv­ar­skyldu og fjölda­tak­mörk­un­ina en leigu­bíl­stjórum mun þó ekki verða meinað að aka fyrir til­tekna leigu­bif­reiða­stöð, nái frum­varpið fram að ganga.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að mark­mið frum­varps­ins sé „að tryggja gott aðgengi að hag­kvæmri, skil­virkri og öruggri leigu­bif­reiða­þjón­ustu, neyt­endum og þjón­ustu­veit­endum til hags­bóta. Þá er frum­varp­inu ætlað að tryggja að íslenska ríkið upp­fylli þær þjóð­rétt­ar­legu skuld­bind­ingar sem það hefur und­ir­geng­ist sam­kvæmt samn­ingnum um evr­ópska efna­hags­svæð­ið, auk þess að færa lög og reglur um leigu­bif­reiðar til nútíma­legra horfs með öruggar og tryggar sam­göngur að leið­ar­ljósi.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent