Frosti Sigurjónsson, þingmaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, gerði breytingar á skýrslu starfshóps um skipan peningamála sem hinir nefndarmennirnir gátu ekki sætt sig við. Þess vegna fór það svo að Frosti skilaði skýrslu um málið einn til stjórnvalda í gær. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Kristrúnar Frostadóttur hagfræðings, sem sat í upphaflega starfshópnum. Hún sendi yfirlýsinguna til Kastljóss vegna umfjöllunar þáttarins um málið.
Yfirlýsing Kristrúnar er eftirfarandi:
"Ég tók að mér að taka saman skýrslu um valkosti við brotaforðakerfi að höfðu samráði við starfshópinn sem Frosti Sigurjónsson, formaður hópsins, ég og Davíð Stefánsson vorum skipuð í af forsætisráðherra í byrjun síðasta árs. Var áætlað að vinnan tæki um sex mánuði. Þegar samningurinn rann út í byrjun ágúst 2014 var skýrslan ekki endanlega frágengin. Efnislega töldum við Davíð þó litla vinnu vanta upp á, einkum þurfti að lagfæra uppsetningu og skipulag. Lagt var til við formann hópsins að ráðinn yrði starfsmaður í stað mín þar sem ég var á leið í nám erlendis. Formaðurinn tók hins vegar þá ákvörðun að slíkt væri óþarfi og að hann myndi sjálfur ganga frá skýrslunni og senda okkur til skoðunar áður en hún yrði gefin út.
Í byrjun febrúar sl. sendi formaðurinn okkur skýrsluna eftir að hann hafði farið höndum um ágústútgáfuna. Ljóst var að hann hafði gert efnislegar breytingar á skýrslunni sem við gátum ekki sætt okkur við. Þar sem við töldum að ekki myndi nást samstaða um niðurstöðu og efnistök skýrslunnar í kjölfar þessara breytinga tókum við Davíð þá ákvörðun að segja okkur úr hópnum í síðasta mánuði."
Hér má lesa um skýrslu Frosta um peningamál.