Gerrard fer frá Liverpool - skúbbað á Twitter

Steven-Gerrard.jpg
Auglýsing

Hinn 34 ára gamli Steven Gerr­ard, fyr­ir­liði enska úrvals­deild­ar­fé­lags­ins Liver­pool og einn dáð­asti íþrótta­maður Bret­landseyja, mun hætta að leika með lið­inu í lok tíma­bils­ins og halda á ný mið. Þetta stað­festi Liver­pool með yfir­lýs­ingu á vef­síðu sinni í morg­un, en áður hafði Tony Barrett, blaða­maður The Times, sagt fyrstu fréttir af þess­ari ákvörðun Gerr­ards. Banda­rísku félögin LA Galaxy og New York City eru sögð hafa áhuga á því að fá Gerr­ard til liðs við sig en end­an­leg ákvörðun um hvar Gerr­ard mun leika hefur ekki verið tek­in.



Gerr­ard segir í yfir­lýs­ingu á vef Liver­pool að hann sé þakk­látur félag­inu fyrir hvernig það hefur staðið á bak við hann. Hann sagð­ist, vilja gefa út yfir­lýs­ingu á þessum tíma­punkt­i svo að knatt­spyrnu­stjór­inn og félagið verði ekki fyrir trufl­unum vegna orðróms um að hann sé að fara frá félag­inu það sem eftir lifir leik­tíð­ar. Gerr­ard spil­aði sinn fyrsta leik fyrir Liver­pool árið 1998, þá átján ára gam­all. Hann hefur leikið 695 leiki fyrir Liver­pool, hefur fagnað tíu titlum með félag­inu, en sá stærsti er þegar Liver­pool vann Meist­ara­deild Evr­ópu árið 2005, þar sem hann skor­aði eitt mark og lék stórt hlut­verk í end­ur­komu liðs­ins eftir að það hafði lent 3-0 undir gegn AC Mil­an. Gerr­ard hefur aldrei fagnað sigri í ensku úrvals­deild­inni á ferli sín­um, en komst einna næst því í fyrra þegar Liver­pool end­aði leik­tíð­ina í öðru sæti á eftir Manchester City. Gerr­ar­d lék 114 lands­leiki fyrir Eng­land áður en hann hætti að leika með lið­inu, eftir HM í Bras­ilíu síð­ast­liðið sum­ar. Margir fyrr­ver­andi leik­menn Liver­pool, og and­stæð­ingar sömu­leið­is, hafa tjáð sig um ákvörðun Gerr­ards í dag. Einn þeirra, Terry McDermott, sem var lyk­il­maður í sig­ur­sælasta liði Liver­pool í sög­unni, þegar það vann meðal ann­ars Evr­ópu­meist­ara­tit­il­inn þrjú ár í röð, segir Gerr­ard vera besta leik­mann í sögu Liver­pool. Hann hafi verið leik­maður hjá Liver­pool, þegar það var í besta falli „í með­al­lagi“ og það hafi samt unnið titla og hann farið fyrir lið­inu nán­ast allan feril sinn með því, sem lýkur í vor. 

https://www.youtu­be.com/watch?v=U­H6xY01jp5A

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None