Geta selt Íslandsbanka til asískra fjárfesta á níu mánuðum

íslandsbanki-8.jpg
Auglýsing

Mik­ill áhugi er á meðal asískra fjár­festa að kaupa hlut slita­stjórnar Glitnis í Íslands­banka, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Hóp­ur­inn sem sýnt hefur mestan áhuga er leiddur af aðilum í Hong Kong sem eiga hlut í mörgum fjár­mála­fyr­ir­tækjum víða um heim og hafa reynslu af fjár­magns­höft­um, sem eru við lýði á Íslandi. Fjár­fest­arnir vilja hins vegar ekki kaupa bank­ann nema með vel­þóknun íslenskra stjórn­valda. Auk þess þurfi ríkið að koma að söl­unni, meðal ann­ars til að útskýra hvers konar hömlur yrðu settar á arð­greiðslur bank­anna til erlendra eig­enda. Auk þess þarf að taka póli­tíska afstöðu til þess hvort vilji sé til að selja íslenskan banka til slíkra fjár­festa. Slík aðkoma hefur ekki átt sér stað og því stendur málið fast.

Ef vilji er til og sam­starf næst við íslensk stjórn­völd telja þeir sem að mál­inu kom­a að hægt yrði að ljúka slíkri sölu á níu mán­uð­um.

Einnig áhugi á Arion banka



Stærstu íslensku eignir þrota­bú­anna eru Íslands­banki og Arion banki. Mik­ill vilji er innan slita­stjórna þeirra að selja þá fyrir gjald­eyri. Þannig væri hægt að greiða út sölu­and­virðið til kröfu­hafa án þess að það hefði áhrif á greiðslu­­jöfnuð Íslands.

Erlendir aðilar hafa einnig lýst yfir áhuga á að kaupa hlut þrota­bús Kaup­þings í Arion banka. Form­legar við­ræður eru ekki hafnar en sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er meðal ann­ars um að ræða fjár­mála­fyr­ir­tæki í Skand­in­av­íu. Slík sala yrði þó, líkt og í til­felli Íslands­banka, alltaf hluti af nauða­samn­ings­upp­gjöri og verður ekki að veru­leika fyrr en fyrir liggur póli­tísk ákvörðun um að heim­ila hana.

Auglýsing

Fréttin er hluti af ítar­legri umfjöllun Kjarn­ans um losun fjár­magns­hafta sem birt­ist í síð­ustu útgáfu hans.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None