Gjaldeyrisforðinn minnkar en „hreinn“ forði stækkar

marpng-1.jpg
Auglýsing

Gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans um síð­ustu mán­að­ar­mót var 604,5 millj­arðar króna að stærð og lækk­aði um 15,5 millj­arða í mán­uð­in­um. Enu að síður jókst hreinn gjald­eyr­is­forði, þ.e. erlendar eignir að frá­dregnum erlendum skuld­um. Hreinn forði nam 447,6 millj­örðum króna í lok ágúst sam­an­borið við 407,9 millj­arða króna í lok júlí.

Frá þessu greinir á vef Seðla­bank­ans. Nettó útgreiðslur gjald­eyr­is­eigna Seðla­bank­ans og rík­is­sjóðs fyrir næstu tólf mán­uði eru áætl­aðar um 156,9 millj­arðar króna.

Auglýsing


Seðla­bank­inn hefur verið afar virkur á gjald­eyr­is­mark­aði und­an­farna mán­uði og hefur keypt stóran hluta þess gjald­eyris sem streymt hefur til lands­ins, ekki síst með komu ferða­manna. Met hafa verið slegin í gjald­eyr­is­kaupum og áætl­aði grein­ing Íslands­banka í júlí síð­ast­liðnum að hreinn gjald­eyr­is­forði verði þrisvar sinnum stærri í árs­lok en hann var í árs­byrjun.



Í nýlegri grein­ingu hag­fræði­deildar Lands­bank­ans kom fram að kaup Seðla­bank­ans á gjald­eyri í ágúst hafi nuið 319 millj­ónum evra. Hrein gjald­eyr­is­kaup hans það sem af er ári er þannig orðin um 1,1 millj­arður evra.



Ástæða fyrir lækkun vergs gjald­eyr­is­forða má rekja til end­ur­greiðslu erlendra skulda rík­is­sjóðs í byrjun ágúst, en þá keypti rík­is­sjóður eigin skulda­bréf að nafn­virði 400 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara. Rík­is­sjóður not­aði til þess inn­stæður sínar í erlendum gjald­eyri hjá Seðla­bank­anum og lækkar forð­inn því sem þeim nemur.



Með miklum kaupum á gjald­eyri í því skyni að stækka óskuld­settan gjald­eyr­is­forða þá und­ir­býr Seðla­bank­inn sig fyrir aflandskrón­u­út­boð sem halda á í haust, og er einn stórra þátta í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta.



Athuga­semd rit­stjórn­ar: Upp­haf­legri frétt hefur verið breytt en þar var „hreinn gjald­eyr­is­forð­i“, eins og hann er skil­greindur af Seðla­bank­anum sem erlendar eignir umfram erlendar skuld­ir, kall­aður „óskuld­settur forð­i“. Því hefur verið breytt í kjöl­far athuga­semda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None