Gríðarleg hagsmunamál í fæðingarorlofs- og leikskólamálum

19154270071_9f26da3643_z.jpg
Auglýsing

Starfs­hópur um leik­skóla að loknu fæð­ing­ar­or­lofi skil­aði af sér til­lögum á mið­viku­dag. Það þarf ekki að koma nokkrum manni á óvart að þar er lagt til að stefnt verði að því að bjóða öllum börnum dvöl á leik­skóla þegar þau eru yngri en nú er raun­in, eða frá eins árs aldri. Til að byrja með verði börnum veitt pláss frá átján mán­aða aldri. Það er auð­vitað gríð­ar­legt hags­muna­mál að börn og for­eldrar hafi kost á fag­legri dag­vist­un, ekki síður en leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs­ins og breyt­ingar á hámarks­greiðsl­um.

Núna er einnig að störfum starfs­hópur um fram­tíð­ar­skipan fæð­ing­ar­or­lofs­mála, sem Eygló Harð­ar­dóttir félags­mála­ráð­herra skip­aði í lok síð­asta árs. Ein ástæðan var einmitt sú að sögn ráð­herr­ans að for­eldrar hér á landi þurfi að brúa lengsta bilið frá þeim tíma sem fæð­ing­ar­or­lofi lýkur þar til leik­skóla­ganga hefst. Sú ákvörðun síð­ustu rík­is­stjórnar að lækka hámarks­greiðslur úr sjóðnum hafði líka mjög slæm áhrif, sér­stak­lega á töku feðra á fæð­ing­ar­or­lofi, sem er mikið jafn­rétt­is­mál.

Þótt þessir tveir starfs­hópar hafi ekki fengið mjög mikla athygli þá ná þeir í sam­ein­ingu utan um nokkur af stærstu hags­muna­málum sam­fé­lags­ins.

Auglýsing

Það fylgir því auð­vitað kostn­aður ef taka á yngri börn inn á leik­skóla, það krefst bæði hús­næðis og fleira starfs­fólks, en ekki síst krefst það kannski póli­tísks vilja. Sömu sögu er að segja af leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs og hækkun á hámarks­greiðsl­um.

Því staðan er þannig að ef ungt fólk á að geta hugsað sér að vera á Íslandi, eins og mikið er rætt um þessa dag­ana, er stór þáttur þess að því sé gert kleift að eign­ast börn ef það kýs svo, taka fæð­ing­ar­or­lof og geta svo áhyggju­laust haft börnin sín á fag­legum stofn­un­um. Það væri nú rós í hnappa­gat stjórn­mála­manna ef þeir gætu komið sér saman um skyn­sam­legar breyt­ingar til góðs í þessum mál­um.

Pæl­ing dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarn­ans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum frétt­um. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Frétta­póstur Kjarn­ans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None