Íslandsbanki gerður söluhæfur til erlendra aðila: Eigið fé lækkað og arður greiddur til ríkisins

islandsbanki-2.jpg
Auglýsing

Íslands­banki og Glitnir gerðu í dag ramma­sam­komu­lag um sam­starf svo að slita­með­ferð Glitnis nái fram að ganga. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar eru listaðar þær aðgerðir sem ráð­ist verður í. Þær eru hinar sömu og áður hefur verið greint frá, það eru  til­lög­urnar sem kröfu­hafar Glitn­is lögðu fyrir stýrni­efnd stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta í júní síð­ast­liðnum. Í þeim til­lögum var sér­stak­lega talað um aðgerðir sem ráð­ist yrði í fyrir sölu Íslands­banka til ann­arra aðila, en hann er í dag að stærstum hluta í eigu slita­bús Glitn­is.

Ramma­sam­komu­lagið kveður meðal ann­ars á um að sala á Íslands­banka til íslenskra fjár­festa verður tak­mörk­uð. Hvorki Íslands­banki né slita­stjórn Glitnis vildu tjá sig frekar um þetta atriði þegar eftir því var leit­að.

Meðal þess sem gert verður er lækkun á eigin fé Íslands­banka úr 28,4 pró­sentum í 23 pró­sent. Þessi aðgerð felur meðal ann­ars í sér útgáfu um 16 millj­arða króna víkj­andi skulda­bréfs eða við­bótar eigin fjár í erlendri mynt til tíu ára, útgefið til Glitn­is. Þá mun Íslands­banka gefa út um 36 millj­arða króna skulda­bréf til Glitnis á mark­aðs­kjörum til 10 ára. Auk þess greiðir Íslands­banki út tæp­lega þriggja millj­arða króna arð til Banka­sýslu rík­is­ins, sem heldur um hlut rík­is­ins í bank­an­um.

Auglýsing

Sam­kvæmt til­lög­unum mun Íslands­banki gefa út nýtt víkj­andi lán til Glitnis í stað núver­andi láns. Það verður í evrum á mark­aðs­kjörum til að minnsta kosti tíu ára. Glitnir mun auk þess fá afhent skulda­bréf í íslenskum krónum frá Íslands­banka að and­virði sam­tölu inn­lána Glitnis í íslenskum krónum hjá bank­an­um. Það skulda­réf verður einnig á mark­aðs­kjörum til tíu ára.

Íslands­banki gefur út skulda­bréf til Glitnis undir svoköll­uðum „MTN útgáfuramma“ að and­virði 37 millj­arðar króna sem koma í stað erlendra inn­lána Glitnis hjá íslenskum bönk­um. Auk þess verða gefin út undir sama ramma um 3 millj­arða króna skulda­bréf til Glitn­is. Glitnir mun greiða fyrir þau með hagn­aði af sölu eft­ir­stand­andi eigna á Íslandi í erlendum gjald­miðli. Skulda­bréfin verða gefin út í áföng­um, þau verða á mark­aðs­kjörum og til að minnsta kosti sjö ára.

"Eig­in­fjár­hlut­fall Íslands­banka er hátt, lausa­fjár­staða Íslands­banka er góð og verður bank­inn vel í stakk búinn til að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu til fram­tíðar eftir að aðgerðir tengdar þessu sam­komu­lagi koma til fram­kvæmda. Allir aðilar sam­komu­lags­ins koma til með að vinna sam­eig­in­lega að því að samn­ing­ur­inn gangi eftir á árang­urs­ríkan hátt," segir Birna Ein­ars­dóttir í til­kynn­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None