Myndirnar gerbreyta hugmyndum okkar um Plútó

pluto_yfirbord_saevar.jpg
Auglýsing

Fyrstu mynd­irn­ar ­sem borist hafa til Jarðar af yfir­borði Plútó og fylgitungls­ins Karon ger­breyta hug­myndum okkar um Plútó, segir Sævar Helgi Braga­son, hjá Stjörnu­skoð­un­ar­fé­lagi Sel­tjarn­ar­ness. „Þetta er með áhuga­verð­ustu hnöttum sem menn hafa heim­sótt hingað til.“

Myndir sem New Horizons-könn­un­ar­farið tók er það flaug fram hjá Plútó á þriðju­dag hafa verið að ber­ast til Jarðar síðan í gær. Nýjust­u ­mynd­irnar eru að­eins for­smekk­ur­inn af því sem koma skal. Mynd­irnar af Plútó eru aðeins teknar í birt­unni frá Kar­on ­sem end­ur­ka­staði dimmu ljósi Sól­ar­inn­ar. Styrkur ljóss­ins er þús­und sinnum minni en á Jörð­inni.

„Við fyrstu sýn er þetta miklu áhuga­verð­ari staður en við gátum látið okkur dreyma um. Bæði Plútó og tung­lið Kar­on,“ segir Sævar Helgi í sam­tali við Kjarn­ann en það hefur komið vís­inda­mönnum á óvart hversu jarð­fræði­lega ólíkir þessir tveir hnettir reyn­ast vera. „Það kemur líka mjög mikið á óvart hvað yfir­borðið á Kar­on lítur út fyrir að vera ung­legt. Þar er greini­lega eitt­hvað ferli í gangi; Ein­hver jarð­fræði­leg virkni sem kemur tölu­vert á óvart.“

Auglýsing

Karon þykir sérstaklega merkilegur hnöttur. Þar er yfirborðið mjög unglegt. Efst til hægri á þessari mynd má líka greina hátt í 9 kílómetra djúpt gljúfur sem hefur vakið spurningar vísindamanna. (Mynd: NASA) Karon þykir sér­stak­lega merki­legur hnött­ur. Þar er yfir­borðið mjög ung­legt. Efst til hægri á þess­ari mynd má líka greina hátt í 9 kíló­metra djúpt gljúfur sem hefur vakið spurn­ingar vís­inda­manna. (Mynd: NASA)

Nýjar uppgvöt­anir sem þarf að skýra



Ung­leg fjöll sting­ast upp af ­yf­ir­borði Plútó sem benda til þess að enn sé ein­hvers­konar jarð­virkni á hnett­in­um. Skortur á gígum bendir einnig til þess að yfir­borð plánet­unnar sé 100 milljón ára gam­alt. Það er að segja nokkuð ungt, í sam­an­burði við sól­kerfið okkar sem talið er vera 4,56 millj­arða ára gam­alt.

„Á Plútó sjáum við nán­ast enga gíga, sem kemur mikið á óvart. Við sjáum hins vegar breiðar sléttur með ein­hvers­konar efnum sem líta út fyrir að hafa brunn­ið. Og svo þessi fjög­urra kíló­metra háu ísfjöll. Hvaða ferli er það sem skap­aði þessi fjöll á ísi­lögðu yfir­borð­i?“ spyr Sævar Helgi og bendir á að þetta sé alger­lega ný uppgvötun sem á eftir að skýra með sann­fær­andi hætti.

pluto_yfirbord2 Ung ísfjöll sting­ast fjóra kíló­metra upp úr yfir­borði Plútó. Það þarf nýjan skiln­ing á virkni him­in­tungla til þess að skýra þessi ung­legu fjöll. (Mynd: NASA)

 

„Hvaða ferli eru það sem knýja áfram þessa jarð­fræði­legu virkni sem við sjáum á Plútó eða Kar­on. Við bara höfum ekki hug­mynd eins og staðan er núna. Menn þurfa að koma fram með nýjar hug­myndir um það hvernig hægt er að halda svona litlum hnöttum svona óskap­lega langt í burtu virk­um.“

Á ferð með geim­förum



Þegar Kjarn­inn náði tali af Sæv­ari Helga var hann staddur í Ódáða­hrauni að virða fyrir sér Öskju ásamt tveimur banda­rískum geim­förum og afkom­endum Neil Arm­strong, fyrsta mann­inum sem steig á Tunglið. Geim­far­arnir eru Walter Cunn­ing­ham sem var í fyrstu mönn­uðu Apoll­o-­geim­ferð­inni, Apollo 7, og Russel Schweickart sem fór í geim­göngu og próf­aði tungl­bún­ing­inn einna fyrstur í Apollo 9.

Þeir Cunn­ing­ham og Schweickart æfðu í Ódáða­hrauni á sjö­unda ára­tugnum á vegum NASA, en geim­ferða­stofn­unin sendi geim­fara sína til Íslands til að koma þeim í svip­aðar aðstæður og taldar voru vera á Tungl­inu.

Allar mynd­irnar sem NASA birtir úr New Horizons-­leið­angrinum verða aðgengi­legar á vef geim­ferða­stofn­un­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None