Grikkir vilja nota almannatryggingasjóði til að geta borgað laun

grikkl.png
Auglýsing

Grísk stjórn­völd vilja nú nota sjóði almanna­trygg­inga­kerf­is­ins til þess að geta borgað opin­berum starfs­mönnum laun og líf­eyri fyrir þennan mán­uð.

Í nýlegu við­tali við­ur­kenndi Yanis Varoufa­kis fjár­mála­ráð­herra að ríkið sæi fram á erf­ið­leika vegna þess að skatt­heimta í jan­úar var ekki eins mikil og gert var ráð fyr­ir. Hann sagði að til væru pen­ingar til að borga laun og líf­eyri opin­berra starfs­manna, en að annað þyrfti að koma í ljós.

Fin­ancial Times segir að stjórn­völd þrýsti nú á ýmsar stofn­anir að færa fé sitt inn í sam­eig­in­legan sjóð undir stjórn Seðla­banka Grikk­lands. Þannig gætu stjórn­völd haft meiri stjórn á fjár­málum rík­is­ins. Gríska ríkið þarf að greiða 1,2 millj­arð evra til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins fyrir 20. mars og svo þarf ríkið 1,5 millj­arð evra til þess að geta borgað laun og líf­eyri.

Auglýsing

Talið er að rík­is­stofn­anir eigi allt í allt tvo millj­arða evra í vara­sjóði, sem væri nóg til að koma rík­inu í gegnum næstu mán­uði á meðan verið er að semja um áfram­hald á aðstoð frá Evr­ópu­sam­band­inu, Seðla­banka Evr­ópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðn­um.

Með því að nota þetta fé er hins vegar búið að setja almanna­trygg­inga­kerfið í hættu ef ekki tekst að semja. Á meðal þess sem sett yrði í hættu eru atvinnu­leys­is­bætur til þeirra fjöl­mörgu sem eru án vinnu í land­inu.

Fin­ancial Times hefur eftir Theodoros Ambatzoglou, sem er yfir­maður vinnu­mála­stofn­unar lands­ins, að það að færa sjóði sé of áhættu­samt skref að taka.

Hóta að gera þýskar eignir upp­tækar vegna nas­ista



Þá hefur dóms­mála­ráð­herr­ann Nikos Para­skevopou­los hótað því að gera þýskar eignir upp­tækar til þess að greiða bætur vegna stríðs­glæpa nas­ista í Grikk­landi í seinni heim­styrj­öld­inni. Grískir fjöl­miðlar hafa eftir honum að hann sé reiðu­bú­inn að virkja dóms­úr­skurð frá árinu 2000 þar sem hæsti­réttur Grikk­lands dæmdi afkom­endum 218 ein­stak­linga sem voru myrtir af nas­istum í Distomo árið 1944 bæt­ur.

Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra sagði einnig í gær að rík­is­stjórnin hefði fullan hug á því að sækja stríðs­bætur til Þjóð­verja

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None