Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, leiðir framboðslista Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Í öðru sæti er Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum. Listinn er sá fyrsti sem Viðreisn kynnir fyrir þingkosningarnar sem fram fara 25. september næstkomandi.
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg, skipar þriðja sæti listans og Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, er í fjórða sæti.
Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.
Hér er listi yfir þá sem skipa tíu efstu sætin hjá Viðreisn í Suðurkjördæmi:
- Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Reykjanesbær.
- Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum. Hveragerði.
- Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg. Selfoss.
- Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Reykjanesbær.
- Axel Sigurðsson, matvæla- og búfræðingur. Selfoss.
- Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, lögmaður. Hveragerði.
- Arnar Páll Guðmundsson, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.
- Kristina Elísabet Andrésdóttir, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.
- Bjarki Eiríksson, sölu- og þjónusturáðgjafi. Hella.
- Jasmina Crnac, stjórnmálafræðingur. Reykjanesbær.