Guðlaugur Þór býður sig fram til formanns gegn Bjarna

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ætlar að bjóða sig fram sem formaður Sjálfstæðisflokksins gegn Bjarna Benediktssyni, sitjandi formanni til þrettán ára, á landsfundi flokksins um næstu helgi.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hélt opinn fund í Valhöll í dag þar sem hann tilkynnti um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hélt opinn fund í Valhöll í dag þar sem hann tilkynnti um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

For­manns­slagur verður í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, stærsta flokki lands­ins, á lands­fundi hans um næstu helgi. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son til­kynnti í hádeg­inu að hann ætli að bjóða sig fram gegn Bjarna Bene­dikts­syni, sitj­andi for­manni.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á ekki að vera stærsti flokk­ur­inn, hann á alltaf að vera langstærsti flokk­ur­inn,“ sagði Guð­augur Þór þegar hann ávarp­aði stuðn­ings­fólk sitt í Val­höll í hádeg­inu þegar hann til­kynnti um fram­boð­ið. Guð­laugur Þór, sem verður 55 ára í des­em­ber, hefur setið á þingi frá árinu 2003 og gegnir nú emb­ætti umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Bjarni hefur verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 2009 og hefur í tvígang fengið mót­fram­boð, árið 2010 þegar Pétur Blön­dal bauð sig fram og ári seinna þegar Hanna Birna Krist­jáns­dóttir bauð sig fram gegn hon­um.

Bjarni hefur gefið það út að tapi hann fyrir Guð­laugi Þór í for­manns­kjör­inu ætli hann að hætta í stjórn­málum. „Ef að mínum tíma sem for­­manni lýkur í þessu kjöri þá er mínum tíma í stjórn­­­málum bara lok­ið. Það er ekk­ert flókn­­ara en það,“ sagði Bjarni á Sprengisandi á Bylgj­unni í morg­un.

Auglýsing

Trúir því að flokk­ur­inn geti gert betur

„Ég ein­arð­lega trúi því að við getum gert bet­ur,“ sagði Guð­laugur Þór í Silfr­inu á RÚV í morgun og lagði áherslu á að Sjálf­stæð­is­flokk­inn verði aftur sú breið­fylk­ing sem hún hefur ver­ið. Frið­jón Frið­jóns­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var einnig gestur í Silfr­inu og sagði fram­boð Guð­laugs „til­efni til ákveð­ins óvinafagn­að­ar“ og fór ekki leynt með það að hann styður sitj­andi for­mann.

Fram­boð hefur legið í loft­inu en það er lík­lega eitt verst geymda leynd­­ar­­mál íslenskra stjórn­­­mála að Guð­laugur Þór hefur lengi haft metnað til þess að verða for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins. Síð­asta þriðju­dag, 25. októ­ber, bár­ust meld­ingar frá fólki innan Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins til fjöl­miðla um að Guð­laugur Þór ætl­­aði í for­­manns­fram­­boð. Þær meld­ingar bár­ust helst frá fólki sem styður hina fylk­ing­una í flokknum og fólk í kringum Guð­laug Þór kann­að­ist ekki við að slík ákvörðun hefði verið tek­in.

Morg­un­­blaðið birti svo frétt dag­inn eft­ir, 26. októ­ber, sem skrifuð er af Andr­ési Magn­ús­­syni, rit­­stjórn­­­ar­­full­­trúa blaðs­ins sem hefur mikil tengsl við Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn. Í frétt­inni sagði að „und­an­farna daga hafa verið miklir orða­sveimir um hugs­an­­­legt fram­­­boð Guð­laugs, sem m.a. hefur verið tengt umdeildu vali á lands­fund­­­ar­­­full­­­trúum í stöku félag­i.“

Guð­laugur Þór komst hjá því að mestu svara fyr­ir­spurnum um for­manns­fram­boð í vik­unni en í sam­tali við Vísi á fimmtu­dag beindi hann athygl­inni að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í for­mann­s­tíð Bjarna og sagði marga í flokknum hafa miklar áhyggjur af stöðu hans.

Fjölmenni var í Valhöll þegar Guðlaugur Þór tilkynnti formannsframboð sitt. Skjáskot: Vísir

Átök tveggja fylk­inga

Nú þegar það liggur fyrir að hann ætlar að sækj­ast eftir for­manns­emb­ætt­inu er ljóst að tvær fylk­ingar innan flokks­ins munu takast á, fylk­ingar sem hafa átt í inn­­­byrðis átökum um ítök og áhrif árum sam­an án þess að hafa barist á um æðstu emb­ættin í flokkn­­um.

Um er að ræða þá fylk­ingu sem fylgir Guð­laugi Þór að málum og þá sem hverf­ist í kringum Bjarna Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­­mann Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins frá árinu 2009.

Guðlaugur Þór Þórðarson og Bjarni Benediktsson.

Fylk­ing Guð­laugs Þórs hefur tek­ist hart á við hina þegar valið hefur verið á fram­­boðs­lista flokks­ins í síð­­­ustu tveimur borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingum og í próf­­kjör­inu fyrir síð­­­ustu þing­­kosn­­ing­­ar. Færa má rök fyrir því að fylk­ing Guð­laugs Þór hafi sigrað í tveimur af þeim lot­um, fyrir kosn­­ing­­arnar 2018 og 2021, og haft ívið betur í þeirri þriðju, þegar próf­­kjör ákvað lista flokks­ins fyrir síð­­­ustu borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­ar.

Hingað til hefur Guð­laugur Þór valið að sýna þol­in­­mæði í for­­mennsku­­metn­aði sínum og sagt út á við að hann styðji for­yst­una eins og hún er. Taktíkin hefur gengið út á að reyna að bíða for­­mann­s­­tíð Bjarna Bene­dikts­­sonar af sér.

En þegar Bjarni til­­kynnti í ágúst að hann ætl­­aði að sækj­­ast eftir áfram­hald­andi for­­mennsku þurfti Guð­laugur Þór að end­ur­meta aðferða­fræði sína. Það hefur hann nú gert og mun hann etja kappi við Bjarna um emb­ætti for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­fundi flokks­ins sem fer fram næstu helgi.

Lands­fund­ur­inn sá fyrsti frá því í mars 2018. Tvö þús­und lands­fund­ar­full­trú­ar, víða að á land­inu, eiga sæti á fund­inum og hafa kosn­inga­rétt í kjöri til for­manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent