Guðlaugur Þór vill afsökunarbeiðni frá fréttastofu RÚV

15084005597-4b6f84db7d-z.jpg
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­maður fjár­laga­nefndar Alþing­is, segir frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins hafa sakað sig um rang­færslur og blekk­ingar varð­andi fjár­mál Rík­is­út­varps­ins. Hann vill að frétta­stofan leið­rétti frétt um hann með áber­andi hætti. Þetta kemur fram í aðsendri grein Guð­laugs Þórs í Morg­un­blað­inu í dag.

Guð­laugur Þór segir að frétta­stofan hafi, í frétt sem fór í loftið síð­ast­lið­inn föstu­dag, sagt: „Vegna orða Guð­laugs Þórs Þórð­ar­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, um að frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins hafi rang­lega full­yrt að útvarps­gjaldið hafi aldrei runnið óskert til stofn­un­ar­innar og talna sem hann hefur nefnt í því sam­bandi er rétt að minna á að inn­heimta útvarps­gjalds hófst í árs­byrjun 2009. Fram að því var afnota­gjald inn­heimt. Útvarps­gjaldið hefur aldrei runnið óskert til Rík­is­út­varps­ins.“

Þing­mað­ur­inn hafnar þessu og segir að kapp virð­ist hafa borið frétta­stof­una ofur­liði í þessu til­felli og að þröngir sér­hags­munir hafi ráðið för í frétt­flutn­ingi í stað stað­reynda. „Það er alvar­legt þegar frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins - sem starfar í skjóli sér­stakra laga og á kostnað skatt­greið­enda - skuli saka þing­mann um blekk­ingar og jafn­vel beinar rang­færsl­ur. Ætla má að sér­stak­lega sé vandað til verka á rit­stjórnum fjöl­mið­ils sem fer fram með slíkar full­yrð­ing­ar.“

Auglýsing

Hann segir fleiri hafa lagst á árar með frétta­stof­unni við að halda þessu fram, jafnt í þing­sal sem í fjöl­miðl­um, og að þar fari stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn í Sam­fylk­ingu og Vinstri grænum fremstir í flokki.

Rifjar upp bréf Stein­gríms og Katrínar



Guð­laugur Þór rifjar loks upp bréf sem Stein­grímur J. Sig­fús­son og Katrín Jak­obs­dótt­ir, sem þá voru bæði ráð­herr­ar, rit­uðu til stjórnar Rík­is­út­varps­ins 4. febr­úar 2011 vegna árskýrslu Rík­is­út­varps­ins ohf. Fyrir fjár­laga­árið 2009-2010. Í grein Guð­laugs Þórs segir að „þar gagn­rýndi stjórn hins opin­bera hluta­fé­lags að fjár­veit­ingar Alþingis til stofn­un­ar­innar fylgi ekki heimtum af útvarps­gjaldi. Er því haldið fram að með því sé rekstr­ar­formið afskræmt og sé „til þess fallið að skerða fjár­hags­legt og rit­stjórn­ar­legt sjálf­stæði stofn­un­ar­innar gagn­vart ríkj­andi stjórn­völd­um“.

Þessum full­yrð­ingum mót­mæla ráð­herr­arnir einum rómi og það harka­lega enda ekki í „sam­ræmi við stað­reyndir mála“. Vakin er athygli á því að í árs­byrjun 2009 hafi verið „tek­inn upp almennur skatt­ur, útvarps­gjald“ í stað afnota­gjalds og síðan seg­ir:

„Skatt­ur­inn er ekki mark­aður RÚV eins og afnota­gjaldið var enda ann­ars eðl­is. Var m.a. horft til þess að þessi nýi tekju­stofn væri óviss og sveiflu­kennd­ur, sér­stak­lega í ljósi aðstæðna eftir efna­hags­hrunið þar sem mikil óvissa var um hversu margir ein­stak­lingar og lög­að­ilar yrðu tekju­skatts­skyldir og myndu þar með greiða útvarps­gjald­ið.“

Í bréf­inu gagn­rýna ráð­herrar Vinstri grænna Rík­is­út­varpið fyrir að hafa ekki staðið við gerða samn­inga auk þess sem tölu­legar stað­reyndir um fjár­hags­lega aðstoð rík­is­sjóðs á árunum 2006 til 2009 eru dregnar fram. Þá segir orð­rétt:

„Á sama tíma hefur komið í ljós að árin 2009 og 2010 voru inn­heimtar tekjur af útvarps­gjaldi 160 m.kr. lægri en fram­lag rík­is­ins til RÚV voru, eða 6.573 m.kr. á móti 6.733 m.kr. Ef tekin eru með þau útgjöld sem hlut­ust af því þegar rík­is­sjóður lagði nýtt eigið fé inn í RÚV á árinu 2009 eru útgjöld rík­is­sjóðs 723 m.kr. umfram inn­heimtar tekjur af útvarps­gjald­i.““

Í nið­ur­lagi grein­ar­innar segir Guð­laugur Þór: „ Nú er bara að bíða og vona að frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins leið­rétti frétt sína síð­ast­lið­inn föstu­dag með áber­andi hætti. Ábyrgir og metn­að­ar­fullir fjöl­miðlar hafa einnig beðist vel­virð­ingar af minna til­efn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None