Útgönguskattur kynntur fyrir samráðsnefnd um afnám fjármagnshafta

leebucheit.jpg
Auglýsing

Tvær áætl­anir sem tengj­ast losun fjár­magns­hafta voru kynntar fyrir sam­ráðs­nefnd stjórn­mála­flokk­anna um afnám hafta í hádeg­inu í dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Önnur áætl­unin snýst um að knýja eig­endur aflandskróna til að skipta eignum sínum yfir í skulda­bréf til meira en 30 ára og hin snýst um flatan útgöngu­skatt á allar eignir sem vilja yfir­gefa íslenska hag­kerf­ið. Slíkur skattur myndi leggj­ast jafnt á inn­lendar sem erlendar eign­ir.

Á fund sam­ráðs­nefnd­ar­innar komu Glenn Kim, for­maður fram­kvæmda­stjórnar um losun fjár­magns­hafta, og Lee Buchheit, fyrir hönd lög­fræði­stof­unnar Cle­ary Gott­lieb Steen & Hamilton, sem er einn helsti ráð­gjafi stjórn­valda.

Útgöngu­skattur á alla



Önnur kall­ast Project Slack og snýst um að láta eig­endur aflandskróna, sem í dag eru um 300 millj­arðar króna, skipta krónu­eignum sínum yfir í skulda­bréf í erlendum myntum til meira en 30 ára á afslætti. Morg­un­blaðið hefur sagt frá til­urð þess­arrar áætl­unar áður.

Það þýðir líka að allir íslenskir aðilar sem vilja fara út úr höftum með fé, skipta krónum í gjald­eyri, þurfa að greiða útgöngu­skatt­inn líka.

Auglýsing

Hitt sem var kynnt fyrir nefnd­inni var hug­mynd um flatan útgöngu­skatt á allar eignir sem vildu fara út fyrir höft. Það þýðir að skatt­ur­inn myndi leggj­ast á bæði inn­lendar og erlendar eignir þrota­búa Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans. Það þýðir líka að allir íslenskir aðilar sem vilja fara út úr höftum með fé, skipta krónum í gjald­eyri, þurfa að greiða útgöngu­skatt­inn líka. Á meðal þeirra sem hefðu áhuga á að kom­ast út hratt eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Þeir þyrftu þá að borga umræddan skatt ef þeir vildu kom­ast út úr höft­un­um.

Þeir Kim og Buchheit ræddu hins vegar ekk­ert um hversu hár útgöngu­skatt­ur­inn ætti að vera, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Morg­un­blaðið hefur sagt að hann eigi að vera 35 pró­sent og Bloomberg-frétta­veitan sagði í frétt fyrr í dag að rætt hefði verið um að skatt­ur­inn yrði 20-45 pró­sent. Á fund­inum kom hins vegar skýrt fram að mark­mið til­lagn­anna væri ekki að afla tekna fyrir íslenska rík­ið, heldur að afnema fjár­magns­höft. Það þýði samt ekki að ríkið geti ekki hagn­ast mjög á aðgerð­un­um, enda stærð þrota­búa föllnu bank­anna um tvö þús­und millj­arðar króna.

Hitta slita­stjórn­irnar á morgun



Kim og Buhcheit hitta síðan slita­stjórnir Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans allar saman á fundi á Grand hótel klukkan 14 á morg­un. Í bréfi sem var sent til slita­stjórn­anna kom fram að þær ættu að kynna afstöðu sína til þeirra skil­yrða sem stjórn­völd setja fyrir veit­ingu und­an­þága frá fjár­magns­höft­um, sem er for­senda þess að hægt verði að klára nauða­samn­inga búanna og slíta þeim.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans sögðu menn­irnir tveir við sam­ráðs­nefnd­ina í dag að til­gangur fund­ar­ins væri að hlusta á kröfu­hafa föllnu bank­anna og þær hug­myndir sem þeir hefðu um lausn á sínum mál­um. Þeir hefðu enda ítrekað sagt að nóg væri af lausnum á vanda­mál­inu. Ekki stæði til að kynna þeim nein skil­yrði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None