Meirihluti bæjarstjórnar Fjallabyggðar, sameinaðs sveitarfélags Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, hefur ákveðið að ráða Gunnar I. Birgisson sem nýjan bæjarstjóra sveitarfélagsins. Gunnar tekur við af Sigurði Val Ásbjarnarsyni, sem óskaði eftir að láta af störfum af persónulegum ástæðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn Fjallabyggðar. „Gunnar hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og var bæjarstjóri í Kópavogi til fjölda ára,“ segir í fréttatilkynningunni.
Gunnar hefur verið bæjarfulltrúi og þingmaður fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, og á áratuga langan pólitískan feril að baki.
Sigurður Valur segist í tilkynningu á vef Fjallabyggðar, vera stoltur af árangrinum sem hafi náðst í sveitarfélaginu undir hans stjórn. „Í bréfi mínu í dag til bæjarstjórnar Fjallabyggðar hef ég óskað eftir því að fá lausn frá störfum sem bæjarstjóri Fjallabyggðar. Ástæða uppsagnar minnar er fyrst og fremst af persónulegum ástæðum og eru starfslokin gerð í fullri sátt við bæjarfulltrúa. Ég vil þakka bæjarfulltrúum Fjallabyggðar fyrir ánægjulegt samstarf um leið og ég óska þeim góðs gengis við störf sín fyrir samfélagið. Einnig þakka ég starfsmönnum bæjarfélagsins fyrir góð kynni og gott samstarf. Margt hefur áunnist frá árinu 2010 en mörg spennandi verkefni eru framundan. Staða sveitarfélagsins er sterk og ég er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum árum. Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka íbúum Fjallabyggðar fyrir gott samstarf um leið og ég óska bæjarfélaginu alls hins besta,“ segir Sigurður Valur.