Hækkun kaupmáttar á Íslandi með því hæsta sem hefur sést en batinn minni hjá tekjulágum

14079727391-30106ea5ce-z.jpg
Auglýsing

Vísi­tala kaup­máttar hefur aldrei hækkað jafn mikið og hún gerði frá miðju ári 2014 og til júlíloka 2015. Kaup­máttur jókst um 5,9 pró­sent á tíma­bil­inu. Seðla­bank­inn áætlar að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hækki um 7,6 pró­sent í ár, sem er því hæsta sem hefur sést.

Aukn­ing á kaup­mætti og bætt staða á vinnu­mark­aði hefur leitt við vaxtar á einka­neyslu, sem búist er við að auk­ist um 4,2 pró­sent í ár. Gögn Seðla­bank­ans sýna þó að ­staða ein­stak­linga sem búa í eigin hús­næði hafi batnað meira en þeirra sem  eru á leigu­mark­aðnum (þ.e. leigja eða eru í félags­legri leig­u). "Hlut­fall þeirra sem búa í eigin hús­næði lækkar eftir því sem tekjur lækka og hefur bat­inn því verið minni hjá þeim tekju­lægri."

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands sem birt var á föstu­dag.

Auglýsing

Hækk­andi íbúða­verð skiptir miklu



Þar segir að hagur heim­ila hafi vænkast umtals­vert á árinu 2014 og það sem af er þessu ári. Gögn sem byggj­ast á efna­hags­reikn­ingum heim­il­anna sýna að nettó eigna­staða er góð og skuld­setn­ing með minnsta móti. "Nán­ast allir hag­vísar sem skipta máli fyrir stöðu heim­ila hafa þró­ast með jákvæðum hætti síð­ustu miss­er­i."

Stór ástæða fyrir bættri stöðu er hækk­andi íbúða­verð. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var íbúða­verð t.d. 8,1 pró­sent hærra í ágúst en það var ári áður og velta á fast­eigna­mark­aði hefur auk­ist jafnt og þétt. Á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2015 var hún 75 millj­arðar króna, eða þrefalt meiri en á sama tíma 2010 að raun­virði og svipuð og á þriðja fjórð­ungi 2004 þegar þensla á fast­eigna­mark­aði var haf­in.

Mesta árlega lækkun skulda heim­il­anna frá hruni



Skuldir heim­ila voru um 88 pró­sent af lands­fram­leiðslu í júní  og hafa lækkað um tólf­pró­sentu­stig á einu ári. Að raun­virði hafa skuldir heim­ila lækkað um 4,6 pró­sent á sama tíma­bili og um 4 pró­sent sé miðað við fyrri hluta árs 2015. Um er að ræða mestu árlegu lækkun á hlut­fall­inu frá fjár­mála­á­fall­inu og hafa skuldir sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu ekki verið lægri síðan um síð­ustu alda­mót.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika­rit­inu segir að aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar hafa lækkað höf­uð­stól verð­tryggðra hús­næð­is­lána og bætt skulda­stöðu heim­il­anna. Þær eru þó ekki ráð­andi í skulda­lækk­un­ar­ferli heim­ila lands­ins, sem staðið hefur yfir sleitu­laust­frá því snemma árs 2009. "Áætla má að skuldir heim­ila hafi lækkað um 60 ma.kr., bæði vegna beinnar nið­ur­færslu og vegna heim­ildar til nýt­ingar sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­að­ar. Sé horft fram hjá þessum aðgerðum hefðu skuldir heim­ila í hlut­falli við lands­fram­leiðslu lækkað um 9 pró­sentu­stig í stað 12. Skulda­lækkun heim­ila sem hófst snemma árs 2009 er því enn í góðum gang­i".

Veð­setn­ing­ar­hlut­fall lækkar hratt



Veð­setn­ing­ar­hlut­fall heim­ila hefur lækkað mjög hratt frá árs­lokum 2010. Á þeim tíma hefur það lækkað um sam­tals 15,5 pró­sentu­stig og var 40,9 pró­sent í lok júní. Það hafði þá lækkað um fimm pró­sentu­stig á einu ári. Í rit­inu segir að "lækk­unin hefur aldrei verið jafn mikil á einu ári og má segja að í sögu­legu sam­hengi sé hlut­fallið með lægsta móti. Veð­setn­ing­ar­hlut­fallið var nokkuð stöðugt í kringum 45 pró­sent árin 1998-2003. Hlut­fallið lækk­aði frá árs­lokum 2003 til árs­loka 2005 eftir að bank­arnir byrj­uðu að bjóða íbú­ða­lán, en í fyrstu hækk­aði íbúða­verð meira en skuld­setn­ing­in.[...]Í sögu­legu ljósi er því veð­rými þó nokk­urt, sér­stak­lega þegar haft er í huga að mark­aðs­að­ilar gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækkun íbúða­verðs auk þess sem hluti nið­ur­færslu stjórn­valda á verð­tryggðum skuldum heim­il­anna á eftir að koma fram".

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None