Hagnaður Icelandair Group á 2. ársfjórðungi 2015 nam 22,3 milljónum dollara, jafnvirði um 2.900 milljóna króna miðað við gengi dagsins í dag. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 50,3 milljónum dollara samanborið við 45,2 milljónir dollara á öðrum ársfjórðungi 2014. Icelandair Group, sem er á markaði, tilkynnti um afkomu 2. ársfjórðungs í dag. Fram kemur í tilkynningu að arðbær innri vöxtur í millilandaflugi og lægra eldsneytisverð skýri að mestu afkomubatann milli ára.
Heildareignir félagsins námu 1,0 milljarði Bandaríkjadollara í lok annars ársfjórðungs og eiginfjárhlutfall var 36 prósent. Flutningstekjur jukust um 2 prósent en heildartekjur drógust saman um 1 prósent.
„Afkoma á öðrum ársfjórðungi var góð, EBITDA nam 50,3 milljónum USD og jókst um 5,0 milljónir USD samanborið við afkomu annars ársfjórðungs 2014. Helsta skýringin á góðu gengi félagsins er arðbær innri vöxtur í millilandastarfsemi félagsins. Framboð í millilandafluginu var aukið um 15% á fjórðungnum samanborið við síðasta ár og á sama tíma fjölgaði farþegum um 17%. Sætanýting var góð, nam 81,8% og jókst um 1,8 prósentustig á milli ára. Þá hefur lækkun eldsneytisverðs á milli ára jákvæð áhrif á afkomuna. Rekstur annarrar starfsemi félagsins gekk einnig vel á fjórðungnum,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningu.
„Í upphafi árs gáfum við út EBITDA-spá sem nam 160-165 milljónum USD og staðfestum við hana við birtingu uppgjörs fyrir fyrsta ársfjórðung í apríl síðastliðnum. Rekstur félagsins hefur gengið vel á fyrstu sex mánuðum ársins, auk hagfelldrar þróunar á ytri aðstæðum frá síðasta uppgjöri. Uppfærðar forsendur gera nú ráð fyrir að EUR/USD krossinn verði að meðaltali 1,10 út árið í stað 1,07 sem hefur jákvæð áhrif á reksturinn. Eins hefur bókunarstaða fyrir næstu mánuði í millilandaflugi styrkst umfram væntingar félagsins og hefur það að öðru óbreyttu jákvæð áhrif á afkomu á síðari hluta ársins, þá sérstaklega á afkomu þriðja ársfjórðungs. Að teknu tilliti til þessara þátta er nú gert ráð fyrir að EBITDA félagsins fyrir árið 2015 verði á bilinu 180-185 milljónir USD.“