Íslandsbanki kærði Höllu Sigrúnu Hjartardóttur, núverandi stjórnarformann FME, til Fjármálaeftirlitsins og sérstaks saksóknara eftir að hún lét af störfum og hóf störf hjá Straumi. Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu í dag.
Kærurnar voru látnar niður falla hjá báðum embættum, samkvæmt heimildum sem Viðskiptablaðið vísar til, og mun það hafa verið gert áður en Halla hóf störf hjá Straumi. Lauk málunum því fyrir áramót 2011-2012.
Tómas Sigurðsson, yfirlögfræðingur Íslandsbanka, segir í samtali við Viðskiptablaðið að hann vildi ekki tjá sig um efni kærunnar, en samkvæmt heimildum sem Viðskiptablaðið vísaði til, var Höllu gefið að sök að hafa tekið með sér upplýsingar úr bankanum þegar hún skipti um vinnu.
Eins og greint var frá í gær þá mun Halla Sigrún hætta sem formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins í lok ársins.