Hámarksútsvar hækkað um 0,22 prósentustig og tekjuskattur lækkaður á móti

Fjármála- og efnahagsráðuneytið útfærði tillögur um hækkun hámarksútsvars og lækkun tekjuskatts til að koma til móts við útgjaldaaukningu sveitarfélaga vegna málaflokks fatlaðs fólks. Hámarksútsvar má verða 14,74 prósent á næsta ári.

Sveitarfélögin munu geta lagt á allt að 14,74 prósenta útsvar á næsta ári.
Sveitarfélögin munu geta lagt á allt að 14,74 prósenta útsvar á næsta ári.
Auglýsing

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið lagði á fimmtu­dag fram breyt­ing­ar­til­lögur við fjár­laga­band­orm­inn svo­kall­aða, sem fela í sér að leyfi­legt hámarks­út­svar sveit­ar­fé­laga verði hækkað um 0,22 pró­sentu­stig og hlut­fall tekju­skatts lækki um sam­svari hlut­fall í öllum skatt­þrepum ein­stak­linga. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar gerði til­lög­urnar að sínum og voru þessar breyt­ingar sam­þykktar í þing­inu síð­degis í gær.

Með þessu er verið að færa um 5 millj­arða króna skatt­tekjur frá rík­inu til sveit­ar­fé­laga á árinu 2023, í því skyni að koma til móts við ákall sveit­ar­fé­laga um aukið fé til þess að standa straum af útgjöldum vegna mála­flokks fatl­aðs fólks.

Frek­ari til­lögur mót­aðar í sam­tali ríkis og sveit­ar­fé­laga

Áfram verður þó unnið að frek­ari skoðun á kostn­að­ar­skipt­ingu ríkis og sveit­ar­fé­laga í mála­flokkn­um, en í umfjöllun með breyt­ing­ar­til­lögum ráðu­neyt­is­ins kemur fram að ekki liggi fyrir „full­nægj­andi grein­ing á orsökum þeirrar útgjalda­þró­unar sem átt hefur sér stað

í mála­flokknum á und­an­förnum árum“.

Auglýsing

Starfs­hópur er að störf­um, sem á að móta frek­ari til­lögur um kostn­að­ar­skipt­ingu ríkis og sveit­ar­fé­laga í mála­flokkn­um, en það verður gert á grund­velli kort­lagn­ingar á kostn­að­ar­þróun mála­flokks­ins. Starfs­hóp­ur­inn hefur einnig það hlut­verk að „setja fram val­kosti um hvernig stuðla megi að hag­kvæmni í þjón­ust­unni og hægja á útgjalda­vext­i“.

Sveit­­ar­­fé­lög lands­ins hafa reiknað sig niður á það að gliðnun tekna og útgjalda í mál­efnum fatl­aðra, sem voru færð frá ríki til sveit­­ar­­fé­laga í byrjun árs 2011, hafi verið orð­inn níu millj­­arðar árið 2020 og nýverið kom fram af hálfu sveit­­ar­­fé­laga að gliðn­­unin stefni í 12-13 millj­­arða króna á þessu ári.

Hækk­unin gangi til hlut­deildar Jöfn­un­ar­sjóðs í útsvar­inu

Sig­urður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra var búinn að boða þær aðgerðir sem nú hafa verið lagðar til af hálfu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, en það gerði hann í ræðu á fjár­mála­ráð­stefnu sveit­ar­fé­laga í októ­ber­mán­uði. Þar nefndi hann reyndar ögn hærri pró­sentu, eða 0,26 pró­sentu­stiga hækkun á hámarks­út­svar­inu.

Hann sagði í ræðu sinni að öll hækkun útsvarspró­sent­unnar þyrfti að ganga til hækk­unar á hlut­deild Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga og er það lagt til af hálfu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, en í umfjöllun með breyt­ing­ar­til­lögum ráðu­neyt­is­ins segir að gert sé ráð fyrir að hlut­deild Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga í útsvari auk­ist til jafns við hækkun hámarks­út­svars­ins og hlut­fallið fari úr 0,99 pró­sentum upp í 1,21 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent