Kaupmáttur ráðstöfunartekna ekki dregist jafn mikið saman í næstum tólf ár

Í fyrsta sinn síðan í lok árs 2012 og byrjun árs 2013 gerðist það í ár að kaupmáttur ráðstöfunartekna dróst saman tvo ársfjórðunga í röð. Á þriðja ársfjórðungi dróst hann saman um 6,1 prósent, sem er mesti samdráttur sem hefur mælst frá 2010.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Í fyrsta sinn síðan í lok árs 2012 og byrjun árs 2013 gerð­ist það í ár að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna dróst saman tvo árs­fjórð­unga í röð. Á þriðja árs­fjórð­ungi dróst hann saman um 6,1 pró­sent, sem er mesti sam­dráttur sem hefur mælst á þremur mán­uðum frá lokum árs 2010.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur eru þeir pen­ingar sem standa eftir þegar búið er að draga skatta og önnur gjöld frá launum við­kom­andi og kaup­máttur þeirra lýsir því hvað hver getur keypt fyrir þær tekj­ur. Þegar kaup­mátt­ur­inn dregst saman þá getur við­kom­andi keypt minna fyrir krón­urnar sem hann hefur til ráð­stöf­unar í hverjum mán­uð­i. 

Þetta var annar árs­fjórð­ung­ur­inn í röð sem kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna dróst sam­an, en hann var mínus 2,7 pró­sent á öðrum fjórð­ungi árs­ins 2022. Það er í fyrsta sinn síðan í lok árs 2012 og byrjun árs 2013 sem kaup­máttur dregst saman tvo árs­fjórð­unga í röð og sam­drátt­ur­inn í kaup­mætti á síð­ustu mán­uðum er sá mesti sem mælst hefur síðan í lok árs 2010, eða í næstum tólf ár. 

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hag­stofu Íslands um tekju­skipt­ing­ar­upp­gjör heim­il­is­geirans. 

Auglýsing
Í sam­an­tekt hennar segir að áætlað sé að ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila­geirans hafi auk­ist um 5,8 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi 2022 í sam­an­burði við sama tíma­bil fyrra árs. „Gert er ráð fyrir því að ráð­stöf­un­ar­tekjur á mann hafi numið rúm­lega 1,2 millj­ónum króna á árs­fjórð­ungnum og hafi auk­ist um 2,9 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra. 

Að teknu til­liti til verð­lags­þró­unar er hins vegar áætlað að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna á mann hafi dreg­ist saman um áður­nefnd 6,1 pró­sent á tíma­bil­inu en vísi­tala neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, hækk­aði um 9,7 pró­sent á sama tíma­bili.

Vaxta­gjöld vigta inn í útgjöldin

Í töl­unum eru vaxta­gjöld heim­il­anna dregin frá tekjum við útreikn­ing ráð­stöf­un­ar­tekna. Þannig er í töl­unum tekið til­lit til áhrifa vaxta­hækk­ana á heim­il­in. Miklar stýri­vaxta­hækk­anir hafa hækkað vaxta­gjöld heim­ila grið­ar­lega á und­an­förnum mán­uð­um, en vext­irnir hafa farið úr 0,75 pró­sent í maí í fyrra í sex pró­sent nú.

Í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins af birt­ingu taln­anna er ekki minnst á 6,1 pró­sent sam­drátt í kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna á síð­asta árs­fjórð­ungi heldur sagt að af þeim megi „ráða að ráð­stöf­un­ar­tekjur séu enn með mesta móti þrátt fyrir vaxta­hækk­anir og kaup­máttur mik­ill þrátt fyrir hækkun verð­bólg­u.“

Gera megi ráð fyrir að tekjur haldi áfram að vaxa í kjöl­far launa­hækk­ana sem taki gildi með nýjum kjara­samn­ingum á almennum vinnu­mark­aði og aðgerða stjórn­valda til stuðn­ings við­kvæmum hóp­um, hækk­unar hús­næð­is­bóta og styrk­ingar barna­bóta­kerf­is­ins. „Tölur Hag­stof­unnar benda til þess að þrátt fyrir hækkun vaxta und­an­farið séu vaxta­gjöld heim­il­anna enn lág í sögu­legu sam­hengi. Með breyt­ingum á vaxta­bóta­kerf­inu sem taka gildi á næsta ári munu fleiri heim­ili njóta vaxta­bóta en áður.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent