Ríkasta 0,1 prósentið skuldaði nánast ekkert en átti eignir upp á 330 milljarða

Flestir landsmenn eiga þorra hreinnar eignar sinnar í steypu, húsnæðinu sem þeir búa í. 90 prósent þeirra skulda rúmlega helminginaf virði eigna sinna. Þannig er málum ekki háttað hjá þeim sem eiga mest.

peningar í veski krónur
Auglýsing

Þau 90 pró­sent lands­manna sem eiga minnst eigið fé eru sam­an­lagt með 52,2 pró­sent eig­in­fjár­hlut­fall í heim­il­is­bók­haldi sínu, sam­kvæmt tölum Hag­stofu Íslands. Hóp­ur­inn, meg­in­þorri allra Íslend­inga, á eignir sem metnar voru á 4.679 millj­arða króna í lok síð­asta árs og eigið fé hans, eignir umfram skuld­ir, var 2.446 millj­arðar króna. 

Í efsta lag­inu, hjá þeim hópi sem mest eigið fé, er staðan öðru­vísi. Hjá 224 rík­ustu fjöl­skyldum lands­ins voru eign­irnar 330,1 millj­arðar króna í lok síð­asta árs og eigið féð 325,2 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 98,5 pró­sent og skuld­irnar á bak­við eign­irnar ein­ungis 4,9 millj­arðar króna. 

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­­­son­­­ar, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­­­spurn Loga Ein­­­ar­s­­­son­­­ar, þing­­­manns Sam­­­fylk­ing­­­ar­inn­­­ar, um eignir og tekjur rík­­­asta hóps lands­­­manna á síð­­­asta ári. Svarið var birt á vef Alþingis fyrr í þessum mán­uði.

Hjá rík­asta eina pró­sent­inu, sem telur 2.240 fjöl­skyldur af þeim 243.855 sem gögn Skatts­ins ná yfir, námu eign­irnar 1.040 millj­örðum króna í lok árs 2021, og eigið féð var 995,5 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fallið var því 95,7 pró­sent og skuld­irnar á bak­við eign­irnar 44,5 millj­arðar króna.

Vert er að taka fram að rík­ustu hópar sam­fé­lags­ins eiga að þorra þeirra verð­bréfa sem eru í eigu ein­stak­linga í land­inu. Það þýðir til að mynda hluta­bréf í skráðum félögum eða hluti í einka­hluta­fé­lög­um. Inni í þeim félögum geta verið miklar skuld­ir.

Flestir eiga sína hreinu eign í steypu

Flestir Íslend­ingar eiga þorra sinnar hreinu eignar í íbúð­ar­hús­næði sínu. Eigið fé þeirra 90 pró­sent lands­manna sem áttu minnst eigið fé um síð­ustu ára­mót í fast­eignum var 2.374 millj­arðar króna. Það þýðir að 87 pró­sent af eigin fé þeirra var bundið í fast­eign­um. Hlut­fallið er mun lægra hjá efstu tíund­inni, eða 65 pró­sent. Sá hópur er líka mun lík­legri til að eiga fleiri fast­eignir en íbúð­ina sem við­kom­andi býr í. 

Auglýsing
Frá byrjun árs 2020 hefur íbúða­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hækkað um meira en 50 pró­­sent og á árinu 2021 einu saman hækk­­aði það um 20 pró­­sent. 

Sam­­kvæmt tölum sem Hag­­stofan birti fyrr á þessu ári var tæp­­­lega 76 pró­­­sent af þeirri aukn­ingu sem varð á eigin fé í fyrra vegna hækk­­­andi fast­eigna­verðs. Slík hækkun eru ekki pen­ingar í hendi hjá þeim sem eiga eina eign, og þurfa að búa í henni, þótt auður verði til á blaði sam­hliða miklum hækk­­­un­­­um. Flestir þurfa að kaupa sér nýja eign ef þeir selja gömlu, og nýju eign­­­irnar hafa líka hækkað að jafn­­­aði jafn mikið í virði. Þótt eig­in­fjár­­­staðan batni í opin­berum tölum þá fjölgar krón­unum sem eru til ráð­­stöf­unar og fjár­­­fest­ingar ekki, nema að við­kom­andi skuld­­setji nýju eigna­­mynd­un­ina til að losa um fé.

Hægt að losa um fé í umfram­eignum

Þeir sem eiga fleiri en eina fast­­­eign, og stunda áhætt­u­fjár­­­­­fest­ingar með slík­­­­­ar, geta hins vegatr hagn­­­ast vel á svona ástandi. Og losað um þann ávinn­ing en samt átt þak yfir höf­uð­ið.

­Sam­­­kvæmt tölum frá Þjóð­­skrá voru það á fimmta þús­und ein­stak­l­ingar og lög­­­að­il­­­ar, sem áttu á milli sín um 53 þús­und íbúð­ir í lok síð­­asta árs. Þá áttu alls 71 ein­stak­l­ingar og 382 lög­­­­að­ilar fleiri en sex íbúð­ir, 155 ein­stak­l­ingar og 101 lög­­­­að­ilar áttu fimm íbúðir og 579 ein­stak­l­ingar og 165 lög­­­­að­ilar áttu fjórar íbúð­­­­ir. Fjöldi þeirra ein­stak­l­inga sem áttu þrjár íbúðir var 2.974 og fjöldi lög­­­­að­ila sem áttu sama magn íbúða var 285. Þá áttu 16.501 ein­stak­l­ingur og 688 lög­­­­að­ilar tvær íbúð­­­­ir. 

Það sem af er árinu 2022 hefur fjöldi þeirra íbúða sem eru í eigu aðila sem eiga fleiri en eina slíka auk­ist um 735, og hlut­­falls­­lega um 0,2 pró­­sent­u­­stig af heild­ar­­í­­búð­­ar­­eign. Nú eru 14,6 pró­­sent allra íbúða í eigu ein­hverra sem eiga fleiri en eina íbúð. Ef farið er 15 ár aftur í tím­ann, til árs­ins 2006, þá var það hlut­­fall 10,6 pró­­sent og fyrir árið 2003 var það ætið undir tveggja stafa tölu, allt niður í 8,1 pró­­sent árið 1994.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent