Framkoma meirihluta fjárlaganefndar „ekkert annað en skandall“

Þingmaður Viðreisnar segir fjölmiðla sitja eftir með enn óreiðukenndari mynd af rekstrarhorfum sínum eftir tilraun meirihluta fjárlaganefndar til að veita N4 100 milljón króna styrk. Styrkveitingin getur ekki talist til ábyrgra fjármála.

Hanna Katrín Friðrikssin, þingmaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Friðrikssin, þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

100 milljón króna styrkur sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar ætl­aði að veita N4 „vegna rekst­­­urs fjöl­miðla á lands­­­byggð­inni sem fram­­­leiða eigið efni fyrir sjón­­­varps­­­stöð“ með breyt­ing­­ar­til­lögu á fjár­­lögum fellur ekki undir ábyrg fjár­mál að mati Hönnu Katrínar Frið­riks­son­ar, þing­manns Við­reisn­ar.

Styrknum var bætt á fjár­­lög eftir að beiðni þar um kom frá Maríu Björk Ingva­dótt­­­ur, fram­­­kvæmda­­­stjóra fjöl­miðla­­­fyr­ir­tæk­is­ins N4 á Akur­eyri. Í beiðn­­inni bað hún um að 100 millj­­ónir króna myndu verða látnir renna úr rík­­is­­sjóði til mið­ils­ins. ­Full­­­trúar stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna í nefnd­inni sam­­­þykktu fjár­­­heim­ild­ina. Þeirra á meðal var Stefán Vagn Stef­áns­­son, þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins. Hann er mágur fram­­kvæmda­­stjór­ans.

Kjarn­inn sagði frá beiðn­inni á mið­viku­dags­morg­un. Fréttin vakti mikla athygli og málið var til umfjöll­unar á flestum helstu frétta­miðlum lands­ins.

Á mið­viku­dags­kvöld birti meiri­hluti fjár­laga­nefndar meiri­hluta­á­lit þar sem segir að við aðra umræðu um fjár­­laga­frum­varpið hafi verið sam­­þykkt til­­laga um tíma­bundið fram­lag til rekst­­urs fjöl­miðla á lands­­byggð­inni sem fram­­leiða eigið efni fyrir sjón­­varps­­stöð. „Í ljósi umræðu í fjöl­miðlum beinir meiri hlut­inn því til ráð­herra að end­­ur­­skoða þær reglur sem gilda um rekstr­­ar­­stuðn­­ing við einka­rekna fjöl­miðla á lands­­byggð­inni þannig að aukið til­­lit verði tekið til þeirra sem fram­­leiða efni fyrir sjón­­varp.“

Auglýsing
Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun fjár­­fram­lagið renna inn í styrkja­­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla og hækka þá upp­­hæð sem þar verður til úthlut­unar úr 377 millj­­ónum króna á næsta ári, í 477 millj­­ónir króna. Það mun koma í hlut Lilju D. Alfreðs­dótt­­ur, menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráð­herra, að útfæra hvernig hið aukna til­­lit til þeirra lands­­byggð­­ar­miðla sem fram­­leiða sjón­­varp verður tekið við úthlutun á næsta ári.

Óreiðu­kennd­ari mynd af rekstr­ar­horfum fjöl­miðla

Hanna Katrín setti styrk­inn, eða til­raun­ina til styrk­veit­ing­ar, í sam­hengi við lög um opin­ber fjár­mál sem sett voru árið 2015. Undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í morgun vís­aði Hanna Katrín í orð Bjarna Bene­dikts­son­ar, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, sem sagði við setn­ingu lag­anna að „þetta sner­ist um vand­aðan und­ir­bún­ing fjár­laga til að trygga fjár­laga­frelsið og tryggja yfir­sýn, draga úr frá­vikum og styrkja gegn­sæ­ið.“ Þá vís­aði hún einnig í orð Guð­laugs Þórs Þórð­ar­son­ar, þáver­andi vara­for­mann fjár­laga­nefnd­ar, sem sagði ekki nóg að lög­festa mál­ið, vinnu­brögð þyrftu að fylgja því sem þarna stæði.

Lögin tóku gildi í byrjun árs 2016. Hanna Katrín sagði að í raun hefði ekki reynt á lögin fyrr en nú vegna fjölda Alþing­is­kosn­inga auk kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem hafa ein­kennt síð­ustu ár.

„Og hvað ger­ist? Á loka­sentí­metrum afgreiðslu fjár­laga laum­aði meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar, laum­uðu þing­menn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, í gegn 100 milljón króna styrk til einka­rek­inna fjöl­miðla á lands­byggð­inni, fjöl­miðla sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð,“ sagði Hanna Katrín.

Meiri­hluti nefnd­ar­innar hafi þannig kippt „sis­vona“ úr sam­bandi fyr­ir­komu­lagi um styrk til einka­rek­inna fjöl­miðla.

„Síðar kom í ljós við eft­ir­grennslan for­viða fjöl­miðla að þessi við­bót var ætluð einni til­tek­inni sjón­varps­stöð og enn síðar kom í ljós að þessi til­tekna sjón­varps­stöð hafði sent inn beiðni um pen­inga til fjár­laga­nefnd­ar, beiðni sem bara meiri hlut­inn sá eftir að hafa fengið vís­bend­ingar um það frá þing­flokks­for­manni Fram­sóknar að slíkt gæti skilað sér — gæti skilað sér,“ hélt Hanna Katrín áfram.

Fögur fyr­ir­heit for­svars­manna rík­is­stjórn­ar­innar um ný og betri vinnu­brögð eld­ast ekki vel að sögn Hönnu Katrín­ar. „Í þokka­bót sitja nú fjöl­miðlar lands­ins eftir með enn óreiðu­kennd­ari mynd af fram­tíð­inni og rekstr­ar­horfum sínum en áður og var þó nóg fyr­ir. Með til­liti til ábyrgra fjár­mála er þessi fram­koma meiri hluta fjár­laga­nefndar ekk­ert annað en skandall, herra for­set­i.“

Birgir Ármanns­son, for­seti Alþing­is, tók þá til máls og sagð­ist velta fyrir sér hvort orðið skandall hafi fengið þegn­rétt í íslensku. „Þing­málið er íslenska.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent