Vill vita hvort tengsl þeirra sem sóttust eftir opinberu fé við nefndarmenn hafi verið metin

Meirihluti fjárlaganefndar samþykkti að veita 100 milljónum úr rík­is­sjóði „vegna rekst­­urs fjöl­miðla á lands­­byggð­inni sem fram­­leiða eigið efni fyrir sjón­­varps­­stöð“ eftir að N4 bað um það. Einn nefndarmanna er mágur framkvæmdastjóra N4.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Auglýsing

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd, sendi í síð­ustu viku fyr­ir­spurn á nefnd­ina og spurði hvort mat hefði verið gert á því hvort „ein­hvers­staðar séu tengdir aðilar við nefnd­ar­menn eða aðra þing­menn - af því að það er sér­stak­lega bannað að taka þátt í atkvæða­greiðslu um slíka fjár­heim­ild." Hann hefur ekki fengið svar.

­Fyr­ir­spurnin skiptir meðal ann­ars màli vegna breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar þess efnis að veita 100 milljón króna fram­lag úr rík­­is­­sjóði „vegna rekst­­­urs fjöl­miðla á lands­­­byggð­inni sem fram­­­leiða eigið efni fyrir sjón­­­varps­­­stöð“ eftir að beiðni þar um kom frá Maríu Björk Ingva­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins N4 á Akur­eyri. Í beiðn­inni fór María fram á alla fjár­hæð­ina fyrir N4. ­Full­trúar stjórn­ar­flokk­anna í nefnd­inni sam­þykktu fjár­heim­ild­ina.

Á meðal nefnd­ar­manna í fjár­laga­nefnd sem stóðu að breyt­ing­ar­til­lögu til að veita 100 milljón króna nýtt fram­lag á grund­velli beiðni N4 er Stefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann er bróðir eig­in­manns Mar­íu, Ómars Braga Stef­áns­son­ar. 

í siða­reglum fyrir alþing­is­menn segir í 5. grein að þing­menn skuli „ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra“. Í 11. grein segir svo að þing­menn skuli við störf sín forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða ann­arra per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins veg­ar. „Tak­ist þing­manni ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.“

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Kjarn­inn hefur reynt að ná tali af Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dótt­ur, for­manni fjár­laga­nefnd­ar, í dag en án árang­ur­s. 

Báðu um fjár­magn byggt á röngum upp­lýs­ingum

Kjarn­inn greindi frá því í gær að María hefði sent beiðni til fjár­­laga­­nefndar þann 1. des­em­ber. Í beiðn­­inni óskar María eftir að rík­­is­­sjóður veiti N4 100 milljón króna styrk „til að halda úti fjöl­mið­l­un, þátta­­gerð og frétta­mið­l­un, af lands­­byggð­unum árið 2023.“ 

N4 er meðal ann­­­ars í eigu KEA, Kaup­­­fé­lags Skag­­­firð­inga og Síld­­­ar­vinnsl­unn­­­ar, sem á hlut í gegnum Fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­fé­lagið Vör. Stærsti eig­andi Síld­­­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­­­stöðvar á Akur­eyr­i. 

Auglýsing
Í beiðni Maríu er settur fram fjór­þættur rök­­stuðn­­ingur fyrir því að N4 eigi að fá sér­­stakan rekstr­­ar­­styrk úr rík­­is­­sjóði. Ann­­ars vegar segir að skil­yrði fyrir rekstr­­ar­­styrk úr rík­­is­­sjóði á und­an­­förnum árum hafi verið að N4 fram­­leiddi eða sýndi 365 þætti á ári, eða að með­­al­tali einn nýjan þátt á dag. Þetta er ekki rétt. Í lögum um fjöl­miðla segir að skil­yrði fyrir styrk séu að prent­miðlar komi út að lág­­marki 20 sinnum á ári og að net­miðl­ar,  hljóð- og mynd­miðlar og aðrir sam­­bæri­­legir miðlar skuli miðla nýju efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.

Í öðru lagi til­­­tekur María að mörg sveit­­ar­­fé­lög hafi verið til­­­búin að styrkja þátta­­gerð af sínum svæð­um, ýmist með beinum styrkjum til þátta­­gerðar eða kaupum á þjón­­ustu. „Nú bregður svo við að aðal­­bakland­ið, Norð­­ur­land allt, hvarf frá þessu 2022 en hélt okkur volgum fram eftir ári. Það komu að lokum rúmar 4 millj­­ónir sam­tals í þjón­ust­u­­kaup frá 12 sveit­­ar­­fé­lögum á Norð­­ur­landi eystra nú í lok árs. ( ca 26.000.- að með­­al­tali á mán­uði frá hverju þeirra ). Þetta hefur sett rekstur stöðv­­­ar­innar í algjört upp­­­nám.“

Þá segir hún aug­lýs­inga­­tekjur hafa stór­minnkað á þessu ári. Þar komi tvennt til, ann­­ars vegar stór­­aukið hlut­­fall aug­lýs­inga sem fari til erlendra sam­­fé­lags­miðla, sem María segir í beiðn­­inni að taki til sín 55 pró­­sent aug­lýs­inga­fjár. Hið rétta er að 43,2 pró­­sent, eða 9,5 af 22 millj­­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­­kaupa í fyrra, fór til erlendra aðila. Hitt sé að stærstur hluti þess sem eftir verði í land­inu fari til RÚV „ þar sem með­­al­­laun sölu­­manna eru 1,2 millj­­ónir á mán­uð­i“. Aug­lýs­inga­­tekjur RÚV í fyrra voru rúm­­lega tveir millj­­arðar króna, sem er undir 20 pró­­sent þeirra aug­lýs­inga­­tekna sem fóru til inn­­­lendra aðila í fyrra. 

Fjórða og síð­­asta atriðið sem María nefnir til stuðn­­ings þess að N4 eigi að fá sér­­stakan rekstr­­ar­­stuðn­­ing er að fyr­ir­tæki séu ekki lengur jafn áfjáð í að kosta þætti eftir að kór­ón­u­veiru­far­aldr­inum lauk og þau voru áður. Það’ hafi orsakað mik­inn tekju­­sam­­drátt.

Þing­­menn utan af landi mynda upp­i­­­stöðu meiri­hlut­ans

Á grund­velli þessa rök­­stuðn­­ings ákvað meiri­hluti fjár­­laga­­nefndar að veita N4 100 millj­­ónum króna úr rík­­is­­sjóði. Meiri­hlut­ann skipa Bjarkey Olsen Gunn­­ar­s­dótt­ir, for­­maður fjár­­laga­­nefndar og þing­­maður Vinstri grænna, Har­aldur Bene­dikts­­son, Bryn­­dís Har­alds­dóttir og Vil­hjálmur Árna­­son úr Sjálf­­stæð­is­­flokki og Þór­­ar­inn Ingi Pét­­ur­s­­son og Stefán Vagn Stef­áns­­son úr Fram­­sókn­­ar­­flokki.

Allir þessir þing­­menn utan Bryn­­dís­­ar, sem kemur úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi, eru þing­­menn lands­­byggð­­ar­­kjör­­dæma. Þeir Stefán Vagn og Har­aldur eru úr Norð­vest­­ur­­kjör­­dæmi, en fram­­kvæmda­­stjóri N4 er búsett á Sauð­ár­­króki sem er í því kjör­­dæmi auk þess se Stefán Vagn er mágur henn­ar. Þau Bjarkey og Þór­­ar­inn Ingi eru úr Norð­aust­­ur­­kjör­­dæmi, þar sem höf­uð­­stöðvar N4 eru.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent