Bjarni tók upp hanskann fyrir almenningssamgöngur

Fjármála- og efnahagsráðherra sagði á þingi á dögunum að honum þætti formaður Miðflokkins tala um almenningssamgöngur eins og þær skiptu engu máli. „Ég er ekki sammála því,“ sagði Bjarni.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á þinginu í síðustu viku.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á þinginu í síðustu viku.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra tók upp hansk­ann fyrir fjár­fest­ingar rík­is­ins í almenn­ings­sam­göng­um, í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins gagn­rýndi sér­stak­lega fjár­veit­ingar til félags­ins Betri sam­gangna í umræðum í þing­inu í síð­ustu viku.

Fram kom í máli fjár­mála­ráð­herra að honum þætti Sig­mundur Davíð tala eins og skil­virkar almenn­ings­sam­göngur skiptu engu máli og sagð­ist Bjarni ekki sam­mála því.

Sig­mundur Davíð sagði í ræðu­stól Alþing­is, í óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn, að rík­is­stjórnin væri að „eyða pen­ingum í alls konar vit­leysu“ og til­tók í þeim efnum sér í lagi 900 millj­óna króna aukin fram­lög til opin­bera hluta­fé­lags­ins Betri sam­gangna, sem lögð voru til á milli umræðna í fjár­laga­vinn­unni sökum þess að ekki kemur til álagn­ingar svo­kall­aðra flýti- og umferð­ar­gjalda á árinu 2023.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. Mynd: Bára Huld Beck.

For­maður Mið­flokks­ins lagði upp með það í ræðum sínum að nafn félags­ins væri rang­nefni, þar sem starf­semi þess sner­ist „um það að þrengja að sam­göngum í borg­inni“ og sagði kostu­legt að ríkið færi „að borga millj­arð í að halda gang­andi ein­hverju batt­eríi um að þrengja að sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna þess að ríkið hafi van­rækt að leggja ný gjöld á almenn­ing“.

Vel hægt að rétt­læta umtals­verða fjár­fest­ingu

Bjarni steig í pontu og svar­aði þeim aðfinnslum sem Sig­mundur Davíð setti fram með þeim orðum að honum þætti for­maður Mið­flokks­ins „tala um almenn­ings­sam­göngur eins og þær séu einskis virði og það skipti engu máli að þær séu skil­virkar og virki hér fyrir höf­uð­borg­ar­bú­a“.

„Ég er ekki sam­mála því,“ sagði Bjarni og bætti við að hann væri þeirrar skoð­unar „að það sé vel hægt að rétt­læta tals­verða fjár­fest­ingu eins og við höfum ákveðið í höf­uð­borg­ar­sátt­mál­anum til þess, sam­hliða vega­fram­kvæmdum fyrir bíla, að hér verði byggt upp nútíma­legt og skil­virkt almenn­ings­sam­göngu­kerfi, alvöru­kerf­i“.

Auglýsing

Með gerð sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var ákveðið að leggja 120 millj­arða króna í bætta sam­göngu­inn­viði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fram til árs­ins 2033.

Þar af var áformað að 52,2 millj­arðar færu í stofn­vega­fram­kvæmd­ir, 49,6 millj­arðar króna í Borg­ar­línu, 8,2 millj­arðar í göngu- og hjóla­stíga og 7,2 millj­arðar í bætta umferð­ar­stýr­ingu og sér­tækar örygg­is­að­gerð­ir. Þessar upp­hæðir voru á verð­lagi árs­ins 2019.

Frum­varp ráð­herra um umferð­ar­gjöld nú áformað í mars

Eins og Kjarn­inn sagði frá í lið­inni viku eru það tafir sem orðið hafa á áformum um að leggja svokölluð flýti- og umferð­ar­gjöld á umferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem skýra aukin fram­lög rík­is­ins til Betri sam­gangna á næsta ári.

Ekki er búið að útfæra þessi nýju gjöld og ekki er heim­ild fyrir þeim í lögum sem stend­ur, en fjár­mála­ráð­herra áformar á þessum þing­vetri að leggja fram frum­varp um flýti- og umferð­ar­gjöld­in. Áður var gert ráð fyrir því að frum­varpið liti dags­ins ljós í nóv­em­ber en nú er áformað að það verði lagt fram í mars.

„Með frum­varp­inu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyr­ir­komu­lag gjald­töku í formi flýti- og umferð­ar­gjalda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með gild­is­töku hinn 1. jan­úar 2024. Mark­mið frum­varps­ins er að standa straum af stofn­fram­kvæmdum sam­göngu­mann­virkja, fjár­mögnun og afleiddum kostn­aði slíkrar upp­bygg­ing­ar. Gjöld­unum er ætlað að tryggja nauð­syn­lega fjár­mögnun um leið og þeim er ætlað að stuðla að því að mark­miðum Sam­göngusátt­mála ríkis og sex sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði náð,“ segir í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent