Betri samgöngur fá 900 milljónir úr ríkissjóði vegna tafa á flýti- og umferðargjöldum

Álagning flýti- og umferðargjalda á höfuðborgarsvæðinu eiga að fjármagna helming samgöngusáttmálans, sem inniheldur meðal annars Borgarlínuna. Gjöldin hafa frestast en áætlað er að þau skili 75 milljörðum króna til ársins 2033.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra ætlaði að leggja fram frumvarp um flýti- og umferðargjöld fyrir jól. Það hefur enn ekki verið lagt fram.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra ætlaði að leggja fram frumvarp um flýti- og umferðargjöld fyrir jól. Það hefur enn ekki verið lagt fram.
Auglýsing

Meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar, skip­aður nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, hefur lagt til að félagið Betri sam­­göngur ohf., sem ríkið og sveit­ar­fé­lög höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins stofn­uðu og eiga í sam­ein­ingu, fái 900 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á næsta ári. Ástæðan er sú að ekki kemur til álagn­ingar flýti- og umferð­ar­gjalda á árinu 2023 eins og gert var ráð fyrir í sátt­mála um sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2019 og eiga að fjár­magna rekstur félags­ins. 

Þegar sam­göngusátt­mál­inn var gerður var hann kynntur sem 120 millj­­arða fjár­­­fest­ing í sam­­göng­u­innviðum á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu. Stærsti kostn­að­ar­liður sátt­mál­ans er hin svo­kall­aða Borg­ar­lína. Þá var boðað að ríkið kæmi með 45 millj­­arða króna að borð­inu, að með­­­töldu sölu­verð­­mæti Keldna­lands­ins, og sveit­­ar­­fé­lögin 15 millj­­arða króna. Þá stóðu eftir 60 millj­­arð­­ar, sem boðað var að inn­­heimta skyldi með sér­­­stökum flýti- og umferð­­ar­­gjöld­um til árs­ins 2033. Sú tala hefur nú verið upp­reikn­uð, að teknu til­liti til verð­lags­breyt­inga, og er nú áætluð 74,6 millj­arðar króna. 

Ef upp­hæð­inni er skipt jafnt yfir árin frá og með 2024 og út samn­ings­tím­ann þá nema árlegar tekjur af flýti- og umferð­ar­gjöldum 7,5 millj­örðum króna.

Mark­miðið að gang­setja gjöldin fyrir árs­lok 2024

Kjarn­inn greindi frá því í sept­em­ber að sam­­kvæmt þing­­mála­­skrá rík­­is­­stjórn­­­ar­innar ætl­aði Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, að leggja fram frum­varp strax í nóv­­em­ber á þessu ári umflýti- og umferð­­ar­­gjöld­in. Lítið hefur heyrst af útfærslu þess­­ara gjalda, sem eiga þó, líkt og áður sagði, að fjár­­­magna helm­ing­inn af öllum þeim sam­­göng­u­fram­­kvæmdum sem framundan eru á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu næsta rúma ára­tug­inn.

Auglýsing
„Með frum­varp­inu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyr­ir­komu­lag gjald­­töku í formi flýti- og umferð­­ar­gjalda á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu með gild­is­­töku hinn 1. jan­úar 2024,“ segir í þing­­mála­­skrá rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­­ar, en þar kemur einnig fram að mark­mið frum­varps­ins sé að standa „standa straum af stofn­fram­­kvæmdum sam­­göng­u­­mann­­virkja, fjár­­­mögnun og afleiddum kostn­aði slíkrar upp­­­bygg­ing­­ar.“

„Gjöld­unum er ætlað að tryggja nauð­­syn­­lega fjár­­­mögnun um leið og þeim er ætlað að stuðla að því að mark­miðum Sam­­göngusátt­­mála ríkis og sex sveit­­ar­­fé­laga á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu verði náð,“ sagði í þing­­mála­­skránni.

Frum­varpið hefur enn sem komið er ekki verið lagt fram og frestun á gjald­tök­unni kallar á 900 milljón króna fram­lag úr rík­is­sjóði á næsta ári. Margt bendir til þess að verk­efnið sé skammt á veg komið en 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn aug­lýsti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið eftir sér­fræð­ingum til að móta gjald­tök­una. Í þeirri aug­lýs­ingu sagði meðal ann­ars að mark­miðið sé „að allir helstu þættir í nýju kerfi sam­göngu­gjalda verði gang­settir fyrir árs­lok 2024.“

Skýrsla unnin um upp­setn­ingu tolla­hliða

Í febr­­úar greindi Kjarn­inn frá því að Betri sam­­göngur hefðu þegar um haustið 2021 lagt fram til­­lögur til rík­­is­ins og sveit­­ar­­fé­lag­anna á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu um að haf­ist yrði handa við að útfæra gjöld­in, með það fyrir augum að þau yrði lögð á frá 1. jan­úar 2023.

Minn­is­­blaðið sem Betri sam­­göngur sendu rík­­inu og sveit­­ar­­fé­lög­unum má nálg­­ast hér, en í því er meðal ann­­ars dregin upp gróf mynd af því hversu há veggjöldin þyrftu að vera á anna­­­tímum og utan þeirra til þess að nægt fé inn­­heimt­ist árlega.

Fjár­­­mögn­un­­ar­á­ætlun sam­­göngusátt­­mál­ans frá 2019 gerði ráð fyrir því að fimm millj­­arðar króna yrðu inn­­heimtir árlega á 12 ára tíma­bili með þessum gjöld­um, alls 60 millj­­arðar króna sem nú eru orðnir tæp­lega 75 millj­arðar króna.

Í minn­is­­blað­inu voru settir fram grófir útreikn­ingar um það hve mikið þyrfti að rukka fyrir akstur í gegnum tolla­hlið sem sett væru upp við akst­­ursleiðir inn að mið­­svæði höf­uð­­borg­­ar­inn­­ar, í Foss­vogs­­dal og svo á bæði Miklu­braut og Reykja­­nes­braut við ósa Ellið­ar­áa, en Betri sam­­göngur fengu verk­fræð­i­­stof­una Eflu til þess að vinna skýrslu um upp­­­setn­ingu tolla­hliða á þeim stöð­­um.

Þar kom fram að ef allar ferðir í gegnum tolla­hliðin myndu kosta 50 krónur og sama gjaldið væri rukkað allan sól­­­­­ar­hring­inn myndi það skila 5,1 millj­­­arði króna í árlegar tekj­­­ur, ef gengið væri út frá því að dag­­­legar ferðir um í gegnum tolla­hliðin væru 250 þús­und tals­ins.

Einnig var farið yfir það hvernig gjöldum af þessu tagi er beitt í öðrum borgum á Norð­­ur­lönd­unum til þess að létta á bíla­um­­ferð á háanna­­tím­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent