Framlög til RÚV hækka enn – Verða milljarði hærri á næsta ári en árið 2021

Alls er búist við að RÚV fái um 5,7 milljarða króna úr ríkissjóði á næsta ári. Það er 625 milljónum krónum meira en í ár og rúmum milljarði króna meira en 2021. Á sama tíma hafa framlög úr ríkissjóði til styrkjakerfis einkarekinna fjölmiðla lækkað.

RÚV
Auglýsing

Fram­lög til RÚV úr rík­is­sjóði verða að óbreyttu 5,7 millj­arðar króna á næsta ári. Þau hafa hækkað um 335 millj­ónir króna frá því að fjár­laga­frum­varpið var lagt fram í sept­em­ber. Ástæða þess, sam­kvæmt kynn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins fyrir fjár­laga­nefnd í gær, er almennt end­ur­mat á inn­heimtu útvarps­gjaldi á grund­velli nýrrar þjóð­hags­spár, álagn­ing lög­að­ila vegna árs­ins 2022 og þeirri stað­reynd að inn­heimta gjald­anna er komin lengra en áður var talið.

Áður lá fyrir að útvarps­gjaldið myndi hækka úr 18.300 krónum á ári í 20.200 krónur á ári til að fylgja verð­lags­breyt­ing­um. Óli Björn Kára­­son, þing­­flokks­for­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, lagði í síð­ustu viku fram breyt­ing­­ar­til­lögu við frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna fjár­­laga þess efnis að fram­lög til RÚV verði ekki hækkuð milli ára.

Úr kynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins fyrir fjárlaganefnd í gær, 7. desember.

RÚV fékk 4,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra og tæp­lega 5,1 millj­arð króna í ár. Auk þess þénar rík­is­fjöl­mið­ill­inn rúm­lega tvo millj­arða króna á ári með sölu aug­lýs­inga. 

Rík­is­fram­lögin til RÚV á næsta ári verða því að óbreyttu rúm­lega millj­arði krónum hærri á næsta ári en þau voru árið 2021 og 625 millj­ónum krónum hærri en þau eru í ár. 

Fram­lög til styrkja­kerfis lækkuð

Á sama tíma lækkar sú upp­hæð sem áætlað er að veita í svo­kallað styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla lít­il­lega milli ára og er áætluð 377 millj­ónir króna. Styrkirnir eru end­­ur­greiðsla á litlum hluta af rit­­­stjórn­­­­­ar­­­kostn­aði þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­fylla ákveðin fram­­­sett skil­yrði. Í ár fengu 25 fyr­ir­tæki styrk. Alls 53 pró­­­sent upp­­­hæð­­­ar­innar fór til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­­­­urs, Sýnar og Torgs. 

Auglýsing
Styrkirnir hafa verið veitt­ir, í mis­mun­andi mynd en að svip­aðri heild­ar­upp­hæð, síð­ast­lið­inn þrjú ár. Verði nýlega fram­lagt frum­varp menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra sam­þykkt mun kerfið verða fram­lengt á sömu for­sendum til tveggja ára. 

Sú hækkun á fram­lögum til RÚV sem er áætluð milli fyrstu og ann­arrar umræðu um fjár­lög slagar því upp í heild­ar­upp­hæð­ina sem stefnt er að því að nota til í styrkja­kerfið fyrir einka­rekna fjöl­miðla á næsta ári. Á sama tíma og fram­lög til kerf­is­ins hafa lækkað um nokkrar millj­ónir króna frá því sem var 2021 hafa fram­lög til RÚV, líkt og áður sagði, hækkað um einn millj­arð króna.

Vilja 100 millj­ónir í lands­byggð­ar­sjón­varp

Meiri­hluti fjár­­laga­­nefnd­­ar, sem sam­anstendur af þing­­mönnum Sjálf­­stæð­is­­flokks, Vinstri grænna og Fram­­sókn­­ar­­flokks, hefur gert eina breyt­ing­­ar­til­lögu á fram­lögðu fjár­­laga­frum­varpi milli fyrstu og ann­­arrar umræðu sem felur í sér auk­inn stuðn­­ing við einka­rekna fjöl­miðla. Um er að ræða 100 milljón króna við­­bót­­ar­fram­lag sem er sagt „vegna rekst­­urs fjöl­miðla á lands­­byggð­inni sem fram­­leiða eigið efni fyrir sjón­­varps­­stöð.“

Ekki er útskýrt af hverju ráð­ist er í þetta við­­bót­­ar­fram­lag og í áliti meiri­hluta fjár­­laga­­nefndar er ekki gerð grein fyrir því hvort eða hvaða beiðni um þetta fram­lag hafi kom­ið.

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. Mynd: RÚV

Heim­ildir Kjarn­ans herma að þessi breyt­ing sé runnin undan rifjum lands­byggð­ar­þing­manna í stjórn­ar­flokk­unum sem telja að RÚV sinni umfjöllun um lands­byggð­inni ekki nægi­lega vel í sjón­varpi. Sem stendur er einn fjöl­mið­ill sem rekur sjón­varps­fram­leiðslu á lands­byggð­inni, N4 á Akur­eyri. Sá fjöl­mið­ill er meðal ann­ars í eigu KEA, Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og Síld­ar­vinnsl­unn­ar, sem á hlut í gegnum Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Vör. Stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­stöðvar á Akur­eyr­i. 

N4 hefur fram­leitt kostað efni fyrir ýmsa aðila, meðal ann­ars Sam­herja, og í fyrra var helsti dag­skrár­gerð­ar­maður N4, Karl Eskill Páls­son, ráð­inn í starf upp­lýs­inga­full­trúa Sam­herja. Fyrir þing­kosn­ing­arnar í fyrra­haust var greint frá því að N4 hafi ætlað að rukka fram­boð fyrir að fá að vera með í kosn­inga­um­fjöllun sem stöðin ætl­aði að vera með. Eftir að málið varð opin­bert var hætt við umfjöll­un­ina.   

Google og Face­book taka stærstan hluta

Í gær greindi Hag­stofa Íslands frá því að næstum önnur hver króna sem varið var til birt­ingu aug­lýs­inga á Íslandi í fyrra hafi runnið til erlendra aðila, aðal­lega vegna kaupa á aug­lýs­ingum fyrir vef. Alls fóru 9,5 af 22 millj­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa á árinu 2021 til erlendra aðila, eða 43,2 pró­sent. Þessir aðilar eru aðal­lega Google og Face­book, en hlutur þess­ara tveggja alþjóð­legu stór­fyr­ir­tækja í greiðslu­korta­við­skiptum vegna þjón­ustu­inn­flutn­ings vegna aug­lýs­inga var 95 pró­sent á síð­asta ári.

Hlutur þess­ara aðila í greiðslum vegna birt­ingu aug­lýs­inga hefur farið hratt vax­andi síð­ustu ár og rúm­lega tvö­fald­ast á átta árum, en á föstu verð­lagi fóru fimm millj­arðar króna til erlendra aðila árið 2013 og, líkt og áður sagði, 9,5 millj­arðar króna í fyrra.

Inn­lendir fjöl­miðlar skiptu með sér 12,3 millj­örðum króna í aug­lýs­inga­tekjur á síð­asta ári..

Þar segir enn fremur að eftir sam­drátt í birt­ingu aug­lýs­inga í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins árið 2020 hafi aug­lýs­inga­út­gjöld auk­ist á síð­asta ári um fimmt­ung og hafa þau ekki verið hærri síðan árið 2018 reiknað á föstu verð­lagi.

Árum saman hafa stjórn­ar­liðað boðað að erlend fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, bæði aug­lýs­inga­salar og streym­isveit­ur, sem hafa miklar tekjur hér­lendis en greiða ekki virð­is­auka­skatt verði skatt­lögð frekar til að jafna leik­inn gagn­vart inn­lendum aðil­um. Ekk­ert frum­varp þess efnis hefur verið lagt fram.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­­­ar­­­styrk úr rík­­­is­­­sjóði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent