„Vandfundin“ sé sú atvinnugrein sem búi við meira eftirlit á Íslandi en fiskeldi

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins tók til varna fyrir fiskeldi í opnum sjókvíum á Alþingi í dag og sagði hagsmunaöfl fara með staðlausa stafi um umhverfisáhrif greinarinnar. Hann minntist ekkert á nýlega slysasleppingu frá Arnarlaxi í ræðu sinni.

Teitur Björn Einarsson er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks, auk þess að starfa sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, þar sem hann fæst m.a. við verkefni á sviði sjálfbærni.
Teitur Björn Einarsson er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks, auk þess að starfa sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, þar sem hann fæst m.a. við verkefni á sviði sjálfbærni.
Auglýsing

Teitur Björn Ein­ars­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­inn­ar, tók upp hansk­ann fyrir fisk­eldi í opnum sjó­kvíum á Alþingi í dag, undir liðnum störf þings­ins og sagði að sú atvinnu­grein væri „vand­fundin á Íslandi“ sem sætti meira eft­ir­liti hins opin­bera.

Í ræðu sinni vék Teitur að því að ýmis fyr­ir­tæki og óskráð hags­muna­sam­tök hefðu nýlega skorað á mat­væla­ráð­herra um að stöðva fisk­eldi í opnum sjó­kvíum, og taldi ástæðu til að áretta í ræðu­stól Alþingis að það væri „Al­þingi, ekki ráð­herra, sem hefur sett grein­inni lagaum­gjörð sem hún starfar eftir og auð­vitað er það Alþingi en ekki ráð­herra sem getur breytt því“.

„Hún er vand­fundin sú atvinnu­grein á Íslandi sem starfar við meira eft­ir­lit, tak­mark­an­ir, kvaðir og gjald­töku en fisk­eld­is­grein­in. Mark­mið lag­anna er að stuðla að upp­bygg­ingu fisk­eldis af ábyrgð þar sem sjálf­bær þróun og vernd líf­ríkis er höfð að leið­ar­ljósi á grund­velli vís­inda og rann­sókna. Þetta er sú stefna sem mín góða rík­is­stjórn er að starfa eft­ir,“ sagði Teitur Björn um atvinnu­grein­ina í ræðu sinni.

Hann bætti því við að þau „hags­muna­öfl“ sem sent hefðu ákallið til ráð­herra fyrir skemmstu héldu því fram að „um­hverfi og þeirra hags­munum stafi veru­leg ógn af fisk­eld­i“.

„Þetta er ein­fald­lega rangt, herra for­set­i,“ sagði Teitur Björn, sem í ræðu sinni minnt­ist ekk­ert á eina helstu ástæðu þess að fyr­ir­tæki og hags­muna­að­ilar sendu ákallið til ráð­herra, nýlegar fréttir af 120 millj­óna króna stjórn­valds­sekt sem lögð var á fyr­ir­tækið Arn­ar­lax í kjöl­far þess að það gat ekki gert grein fyrir örlögum ríf­lega 80 þús­und lax­fiska sem sluppu úr sjó­kví fyr­ir­tæk­is­ins í Arn­ar­firði.

Meint „bakt­er­íumotta“ í Dýra­firð­inum

Hann tók hins vegar annað dæmi af rann­sókn­um, úttekt­um, mæl­ingum og vökt­unum fisk­eld­is­grein­ar­innar og sagði að full­trúi einna sam­tak­anna sem nú beittu sér gegn sjó­kvía­eld­inu hefði full­yrt að hafs­botn­inn í Dýra­firði undir eld­iskvíum væri „ein stór bakt­er­íumotta þar sem ekk­ert annað þrífst“.

Auglýsing

Vís­aði Teitur Björn þarna til ummæla sem Elvar Örn Frið­riks­son fram­kvæmda­stjóri Vernd­ar­sjóðs villtra laxa lét eftir sér hafa í nýlegu við­tali á Hring­braut, en í rit­stjórn­ar­grein í vest­firska vef­miðl­inum Bæj­ar­ins besta sem birt­ist í morgun voru full­yrð­ingar Elvars Arnar bornar til baka með vísan í eft­ir­lits­skýrslur Umhverf­is­stofn­un­ar.

„En hvað segja rann­sóknir og athug­anir óháðra eft­ir­lits­að­ila? Jú, fjörð­ur­inn fær fyrstu ein­kunn, ástand fjarð­ar­ins er gott. Hverju ætlar fólk að trúa hér, upp­hróp­unum og áróðri eða óháðu eft­ir­liti og úttektum sem eru birtar opin­ber­lega?“ sagði Teitur Björn.

„Það er mjög miður að þessi hags­muna­öfl virð­ast engu skeyta um afkomu og vel­ferð fjölda fólks í byggðum lands­ins og tefla því til að mynda fram að hags­munir eig­enda eyði­býla á Horn­ströndum eigi frekar að ráða för, svæði sem fór einmitt í eyði af því að efna­hags­legur grund­völlur þess brast. Það skal ekki henda aftur á Vest­fjörð­u­m,“ sagði Teitur Björn í ræðu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent