Hlutdeild erlendra miðla á auglýsingamarkaði eykst enn og nálgast helming

Verulegur hluti íslensku auglýsingakökunnar rennur til rekstraraðila Facebook og Google og ætla má að 43,2 af hverjum 100 krónum sem varið var í auglýsingar á Íslandi í fyrra hafi runnið til erlendra fyrirtækja, samkvæmt nýrri úttekt Hagstofunnar.

Alþjóðlegu stórfyrirtækin Google og Meta taka til sín stóran hluta af því fé sem íslenskir auglýsendur nota til að koma vörum sínum og þjónustu á framfæri.
Alþjóðlegu stórfyrirtækin Google og Meta taka til sín stóran hluta af því fé sem íslenskir auglýsendur nota til að koma vörum sínum og þjónustu á framfæri.
Auglýsing

Næstum önnur hver króna sem varið var til birt­ingu aug­lýs­inga á Íslandi í fyrra rann til erlendra aðila, aðal­lega vegna kaupa á aug­lýs­ingum fyrir vef. Alls fóru 9,5 af 22 millj­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa á árinu 2021 til erlendra aðila, eða 43,2 pró­sent.

Þessir erlendu aðilar eru aðal­lega Google og Face­book, en hlutur þess­ara tveggja alþjóð­legu stór­fyr­ir­tækja í greiðslu­korta­við­skiptum vegna þjón­ustu­inn­flutn­ings vegna aug­lýs­inga var 95 pró­sent á síð­asta ári.

Hlutur þess­ara aðila í greiðslum vegna birt­inga aug­lýs­inga hefur farið hratt vax­andi síð­ustu ár og tvö­fald­ast á ein­ungis átta árum, en á föstu verð­lagi fóru fimm millj­arðar króna til erlendra aðila árið 2013 og, líkt og áður sagði, 9,5 millj­arðar króna í fyrra. Vöxt­ur­inn á milli áranna 2020 og 2021 nam 34 pró­sent­um.

Inn­lendir fjöl­miðlar skiptu með sér 12,3 millj­örðum króna í aug­lýs­inga­tekjur á síð­asta ári. Fyrir liggur að RÚV, sem fær um fimm millj­arða króna á ári úr rík­is­sjóði, var með rúm­lega tvo millj­arða króna í aug­lýs­inga­tekjur á síð­asta ári og tekur því til sín stóra sneið af þeirri aug­lýs­inga­köku sem er til skipta inn­an­lands.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hag­stofu Íslands. Þar segir enn fremur að eftir sam­drátt í birt­ingu aug­lýs­inga í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins árið 2020 hafi aug­lýs­inga­út­gjöld auk­ist á síð­asta ári um fimmt­ung og hafa þau ekki verið hærri síðan árið 2018 reiknað á föstu verð­lagi.

Hlutdeild erlendra aðila á auglýsingamarkaði hefur farið vaxandi undanfarin ár. Mynd: Hagstofa Íslands

14 pró­senta vöxtur í aug­lýs­inga­tekjum inn­lendra miðla milli ára

Nokkur sam­dráttur varð í aug­lýs­inga­tekjum inn­lendra miðla árið 2020 vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, en tekj­urnar juk­ust árið 2021 úr 10,8 millj­örðum í 12,2 millj­arða, reiknað á föstu verð­lagi. Þetta er um 14 pró­sent vöxtur á milli ára og voru aug­lýs­inga­tekjur inn­lendra miðla árið 2021 sam­bæri­legar við það sem þær voru á árunum 2011 til 2015 reiknað á föstu verð­lagi.

Auglýsing

Sem fyrr eru dag- og viku­blöð stærsti aug­lýs­inga­mið­ill­inn hér á landi en í þeirra hlut féllu tæp­lega þrjár af hverjum tíu krónum af aug­lýs­inga­tekjum fjöl­miðla, en hlut­fall aug­lýs­inga­tekna dag- og viku­blaða heldur þó áfram að drag­ast sam­an. „Þetta má rekja til tveggja sam­hang­andi þátta öðrum frem­ur, ann­ars vegar til­komu og útbreiðslu vef­miðla og hins vegar til almenns sam­dráttar í útbreiðslu og lestri blaða,“ segir í umfjöllun Hag­stof­unn­ar.

Innlenda auglýsingakakan árið 2021, samkvæmt Hagstofunni. Mynd: Hagstofa Íslands

Næst umsvifa­mesti aug­lýs­inga­mið­ill­inn var sjón­varp með 20 pró­senta hlut­deild og því næst vefur með 18 pró­senta hlut. Sam­kvæmt Hag­stof­unni má áætla að um 8 af hverjum 10 krónum sem varið var í kaup aug­lýs­inga á inn­lendum vef­miðlum hafi runnið til vefja sem starf­ræktir eru í tengslum við hefð­bundna fjöl­miðla. Hlutur hljóð­varps í inn­lendum aug­lýs­inga­tekjum nam svo 17 pró­sent­um.

Sér­kenni íslenska aug­lýs­inga­mark­að­ar­ins tals­verð

Í umfjöllun Hag­stof­unnar má finna sam­an­burð á skipt­ingu aug­lýs­inga­fjár eftir flokkum fjöl­miðla árið 2021 við hin Norð­ur­löndin og segir Hag­stofan að sér­kenni íslensks aug­lýs­inga­mark­aðar séu tal­verð þegar litið er til þess­arar skipt­ing­ar.

„Hlut­deild dag- og viku­blaða er tals­vert hærri hér en almennt ger­ist á Norð­ur­lönd­um. Sér­staða íslensks aug­lýs­inga­mark­aðar er einnig tals­verð. Ann­ars vegar er við­kemur hárri hlut­deild hljóð­varps (10%) í aug­lýs­inga­tekjum og hins veg­ar, til­tölu­lega veikri stöðu sjón­varps (11%) og vefs (55%) í sam­an­burði við hin Norð­ur­lönd­in.

Ástæður þess­arar sér­stöðu í skipt­ingu aug­lýs­inga­tekna hér á landi í sam­an­burði við það sem ger­ist á Norð­ur­lönd­unum má að nokkru rekja til sögu­legra aðstæðna. Rík­is­út­varpið hefur nán­ast frá upp­hafi flutt aug­lýs­ing­ar, fyrst í hljóð­varpi og síðar í sjón­varpi, önd­vert við það sem gerð­ist á hinum Norð­ur­lönd­un­um, sem aukið hefur einkum á vægi hljóð­varps sem aug­lýs­inga­mið­ils.

Styrka stöðu frétta­blaða á aug­lýs­inga­mark­aði er að ein­hverju leyti að rekja til þess að dag­blöð hér á landi hafa verið lands­blöð í þeim skiln­ingi að þau hafa höfðað til íbúa að miklu leyti óháð búsetu öfugt við hin Norð­ur­löndin þar sem hér­aðs­blöð hafa að tals­verðu leyti borðið blaða­út­gáf­una uppi í stað lands­blaða. Vægi frí­blaða á blaða­mark­aði í dreif­ingu og lestri er sömu­leiðis meira hér á landi en þekk­ist víð­ast hvar ann­ars staðar sem hefur stuðlað frekar að mik­il­vægi frétta­blaða sem aug­lýs­inga­miðla,“ segir í umfjöllun Hag­stof­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent