„Hókuspókushagstjórn“ sem bitnar verst á almennu launafólki

Ríkisstjórnin hefur enga framtíðarsýn fyrir almenning, segir formaður Sameykis. „Hennar áhugi beinist að því að hlaða meira og hraðar undir ríka og fína fólkið og koma í veg fyrir þann óþverra að almenningur skuli mynda tærnar sínar á Tene.“

Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis.
Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis.
Auglýsing

„Frá­bært útspil Seðla­bank­ans í miðjum kjara­samn­ings­við­ræðum á almennum mark­aði. Húrra fyrir þér!“

Þetta skrifar Þór­ar­inn Eyfjörð, for­maður Sam­eyk­is, í leið­ara í nýjasta tölu­blaði Tíma­rits Sam­eyk­is, um ítrek­aðar stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans und­an­farna mán­uði. Þór­ar­inn gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina og seðla­banka­stjóra harð­lega og segir þau stunda „hók­u­spók­us­hag­stjórn“ sem bitni verst á almennu launa­fólki. Stýri­vaxta­hækk­anir komi verst niður á ungum barna­fjöl­skyldum og lág­launa- og milli­tekju­fólki sem er að reyna að koma sér upp heim­ili og byggja bjarta fram­tíð.

Sam­eyki stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu varð til við sam­ein­ingu Starfs­manna­fé­lags Reykja­vík­ur­borgar og SFR stétt­ar­fé­lags í almanna­þjón­ustu þann 26. jan­úar 2019. Félagið þjónar rúm­lega 12 þús­und félags­mönnum um land allt.

Auglýsing

„Fólkið í fíla­beins­turn­inum hefur engan áhuga á högum almenn­ings og heldur því fram í sínum berg­máls­helli að þjóðin liggi afvelta undan ströndum Afr­íku tak­andi tásu­myndir af sér á snjall­sím­ana sína,“ skrifar Þór­ar­inn og vísar þar til umdeildra ummæla seðla­banka­stjóra. „Þetta segir Ásgeir Jóns­son að sé raun­veru­leik­inn hjá þjóð­inni og það stjórni stýri­vaxta­hækk­unum hans með góð­fús­legu sam­þykki Katrínar & Co.“

Erfið staða hjá ein­stæðum for­eldrum

Mat­vöru­verð og hús­næð­is­lán hækki stöðugt og rekstur heim­ila rjúki upp. Laun dugi ekki lengur til fram­færslu.

Hann bendir á að fjórða hvert heim­ili í land­inu, rúm­lega 38 þús­und manns, áttu erfitt með að ná endum saman árið 2021 og að ástandið hafi svo versnað á þessu ári. Í þessum hópi séu m.a. yfir helm­ingur heim­ila ein­stæðra for­eldra á Íslandi. Kjara­samn­ingar eru að sigla í strand, skrifar Þór­ar­inn, og stjórn­völd sem eiga að bera ábyrgð á rík­is­fjár­málum hendi þeirri ábyrgð á almenn­ing. Á sama tíma séu tekju­stofnar rík­is­ins van­nýtt­ir; banka­skatt­ar, fjár­magnstekju­skatt­ar, auð­legð­ar­skatt­ar, hval­reka­skattar og hækkun auð­linda­gjalda.

„Rík­is­stjórn íhalds og nýfrjáls­hyggju leggur til að rekstur sam­fé­lags­ins, inn­við­anna, komi lóð­beint úr launa­umslagi almenn­ings á sama tíma og verð­mæt­ustu eignir okkar eru afhentar útvöld­um. Það er vaðið áfram á móti þjóð­ar­vilja og mjólk­ur­kúnum slátr­að. Íslands­banki hagn­að­ist um rúma 30 millj­arða 2020 og 2021. Þennan hagnað ætlar Bjarni Bene­dikts­son að færa útvöldum til fram­tíð­ar. Húrra fyrir þér!“

Auglýsing

Þór­ar­inn segir „með miklum ólík­ind­um“ að stjórn­völd hagi sér „eins og þeim komi ekki við hvað er að ger­ast á vinnu­mark­að­i“. Flestallir kjara­samn­ingar séu að losna á næstu fjórum mán­uðum og stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins standi nú í við­kvæmum kjara­samn­ings­við­ræðum á almennum mark­aði.

„Ef núver­andi stjórn­völd hefðu ein­hvern snefil af áhuga á að styrkja sam­fé­lag okkar á þess­ari stundu, myndu þau kynna metn­að­ar­fullar aðgerðir til að vernda þá verst stöddu í sam­fé­lag­inu, hug­myndir um stór­tækar aðgerðir í hús­næð­is­mál­um, gagn­gerar breyt­ingar á skatt­kerf­inu og á tekju­lík­ani ríkis og sveit­ar­fé­laga, umpólun á auð­linda- og fisk­eld­is­gjaldi, o.fl., o.fl.,“ skrifar Þór­ar­inn. „En rík­is­stjórnin hefur enga fram­tíð­ar­sýn fyrir almenn­ing í land­inu. Hennar áhugi bein­ist að því að hlaða meira og hraðar undir ríka og fína fólkið og koma í veg fyrir þann óþverra að almenn­ingur skuli mynda tærnar sínar á Tene.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent