Hanna Birna sest ekki aftur á þing fyrr en eftir miðjan apríl

15267454341_3ba0e4f707_z.jpg
Auglýsing

Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, fyrrum inn­an­rík­is­ráð­herra, ætlar ekki að mæta fyr­ir­ ­stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis til að ræða um leka­mál­ið. Í bréfi sem Hanna Birna sendi for­manni nefnd­ar­innar í dag kemur fram að hún setj­ist á þing eftir miðjan apr­íl. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Ögmundur Jón­as­son, for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþing­is, send­i ít­rekun til Hönnu Birnu um boð á að mæta á fund nefnd­ar­inn­ar. Bréf með ítrek­un­inni var birt á vef Alþing­is í síð­ustu viku.

Hann hafði áður, fyrir hönd nefnd­ar­inn­ar, ritað Hönnu Birnu bréf, þann 22. jan­úar síð­ast­lið­inn í tengslum við leka­málið og henni boðið að mæta á fund nefnd­ar­innar til að gera grein fyrir sinni sýn á málið og svara spurn­ingum nefnd­ar­manna um fram­göngu sína í mál­inu. Þá var óskað eftir því að Hanna Birna myndi svara því skrif­lega hvort hún hyggð­ist verða við óskum um að mæta á fund nefnd­ar­inn­ar.

Auglýsing

Slíkt svar barst hins vegar ekki og því óskað­i ­nefndin eftir að svar myndi frá henni fyrir næsta fund, sem er áætl­aður á morg­un, þann 17. mars.

Frétta­stofa RÚV hefur svar­bréf Hönnu Birnu undir hönd­um. Þar kemur fram að hún vísi til þeirra upp­lýs­inga og gagna sem þegar liggi fyrir í leka­mál­inu. Rann­sókn og sak­sókn máls­ins hafi lokið með dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur yfir fyrrum aðstoð­ar­manni hennar í nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. „Líkt og ítrekað hefur komið fram var ég ekki upp­lýst um þá aðkomu hans fyrr en nokkrum dögum áður. Í það ár sem málið var til umræðu reyndi ég alltaf að svara spurn­ingum um það í sam­ræmi við þá vit­neskju sem ég hafði á hverjum tíma. Það á jafnt við um svör mín við fyr­ir­spurnum þing­manna í þing­sal og til nefnd­ar­manna stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar þegar ég mætti á fund nefnd­ar­inn­ar,“ segir Hanna Birna í bréf­inu sam­kvæmt frétt RÚV.

Þá segir Hanna Birna að umboðs­maður Alþingis hafi lokið sinni athugun á mál­inu með áliti og þar sem hún gegni ekki lengur emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra, hafi áður svarað umboðs­manni Alþingis í fjórum form­legum bréfum og sé sem stendur í leyfi frá þing­störfum „ þá vísa ég til ofan­greinds og óska nefnd­inni vel­farn­aðar í sínum störfum en óska jafn­framt ekki eftir að koma frek­ari upp­lýs­ingum að vegna máls­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None