Hanna Birna sóttist eftir ráðherrastól eða „góðri stöðu" í öðru landi

Morgunblaðið: Hanna Birna kannaði hjá utanríkisráðherra hvort hún fengi „góða stöðu“ í öðru landi.

15267454341_3ba0e4f707_z.jpg
Auglýsing

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir reyndi að fá ráð­herra­emb­ætti á nýjan leik þegar hún snéri aftur til þing­starfa úr fríi í vor, en án árang­urs. Hún kann­aði jafn­framt hjá Gunn­ari Braga Sveins­syni utan­rík­is­ráð­herra hvort hún ætti kost á góðri stöðu í öðru landi, en líka án árang­urs. For­mennska í utan­rík­is­mála­nefnd, sem Hanna Birna fékk í sept­em­ber, hafi verið eins konar tímbundin dúsa handa henni á meðan að hún tekur ákvarð­anir um hver næstu skref hennar verða. Þetta er haft eftir við­mæl­endum blaða­manns Morg­un­blaðs­ins í frétta­skýr­ingu um stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í aðdrag­anda lands­fund­ar, sem birt­ist í blað­inu í morg­un. Á þeim fundi mun Hanna Birna láta af emb­ætti vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Í blað­in­u ­segir að við­mæl­endum Morg­un­blaðs­ins hafi verið tíð­rætt um stöðu Hönnu Birnu, sem sagði af sér emb­ætti inn­an­rikis­ráð­herra vegna leka­máls­ins í lok síð­asta árs. Í skýr­ing­unni, sem Agnes Braga­dóttir skrif­ar, seg­ir: "Flestir virð­ast þeirrar skoð­unar að hennar póli­tíska lífi sé að ljúka og staða hennar í flokknum og þing­flokknum sögð mjög veik. Því er spáð að Hanna Birna noti næsta ár til þess að gera það upp við sig hvort hún hefur áhuga á að taka þátt í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir næstu alþing­is­kosn­ing­ar".

Í skýr­ing­unni er rætt við Hönnu Birnu sem segir það ekki koma sér á óvart að sjálf­stæð­is­menn séu að velta póli­tískri fram­tíð hennar fyrir sér. "Ég hef ítrekað deilt því með mínu fólki í flokknum að reynsla lið­inna ára hafi vakið hjá mér og mínum spurn­ingar um hvort þetta sé minn fram­tíð­ar­stað­ur. Það breytir þó engu um það að stjórn­málin hafa alltaf verið mikil ástríða hjá mér og mig langar enn fátt meira en að berj­ast fyrir hug­sjónum frelsis og tæki­færa. Það geri ég nú á hverjum degi á Alþingi en hef enga ákvörðun tekið um það hvort ég muni gera það til fimm­tugs, sex­tugs eða jafn­vel sjö­tugs. Sú ákvörðun kemur síð­ar".

Auglýsing

Segja að umfjöllun um Ill­uga jaðri við ein­elti



Í frétta­skýr­ing­unni er einnig sagt að "sú heift­úð­lega umræða" sem átt hafi sér stað um Ill­uga Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að und­an­förnu hafi skaðað hans pólitisku stöðu en um leið bendi við­mæl­endur Morg­un­blaðs­ins, sem meðal ann­ars eru sagðir þing­menn flokks­ins, á að "um­fjöllun ákveð­inna fjöl­miðla um stöðu hans og fjár­mál jaðri við ein­elt­i". Vert er að taka fram að Ill­ugi starf­aði sem aðstoð­ar­maður Dav­íðs Odds­son­ar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, árum saman þegar sá síð­ar­nefndi var for­sæt­is­ráð­herra.

Ill­ugi hefir legið undir ámæli vegna tengsla sinn við Hauk Harð­ar­son, stjórn­ar­for­mann fyr­ir­tæk­is­ins Orku Energy. Haukur réð Ill­uga sem ráð­gjafa fyr­ir­tækis síns á meðan að Ill­ugi var í launa­lausu leyfi frá þing­störfum vegna rann­sóknar á pen­inga­mark­aðs­sjóði Glitn­is, Sjóði 9, þar sem Ill­ugi sat í stjórn fyrir banka­hrun­ið. Haukur keypti síðan íbúð Ill­uga af honum í fyrra­sumar og leigði honum hana aft­ur. Ill­ugi var þegar orð­inn ráð­herra þegar hann seldi íbúð­ina, en það gerði hann eftir að „nokkur fjár­hags­leg áföll“ höfðu dunið á hon­um. ­Tengsl Ill­uga við Hauk hafa þótt tor­tryggi­leg vegna þess Haukur fór með Ill­uga í opin­bera heim­sókn til Kína í mars 2015, en Orka Energy stundar umfangs­mikla jarð­varma­starf­semi þar í landi.

Í Morg­un­blað­inu er haft eftir ónafn­greindum þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að árangur Ill­uga í mennta­málum sé mjög van­met­inn. "Hann hefur náð fram breyt­ingum sem menn hafa verið að berj­ast fyrir í yfir tutt­ugu ár. Þar á ég við stytt­ingu fram­halds­skól­ans, sem hefur mikla þjóð­hags­lega þýð­ingu. Þjóð­hags­leg hag­kvæmni þess að krakk­arnir skuli koma ári fyrr út á vinnu­mark­að­inn, hún jafn­gildir lík­lega 13 til 14 millj­arða auknum tekjum í lands­fram­leiðslu. Þessi árangur mætti vera meira til umræðu, að ég tali nú ekki um frá­bæra her­ferð til þess að auka lestr­ar- og stærð­fræði­kunn­áttu grunn­skóla­barna".

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None