Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ekki tilkynnt skrifstofu Alþingis um að hún sé væntanleg aftur á þing. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, í samtali við Kjarnann.
Heimildir Kjarnans herma að Hanna Birna stefni ótrauð á að snúa aftur til þingstarfa í þar næstu viku.
Í bréfi sem Hanna Birna sendi Ögmundi Jónassyni, formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, 16. mars síðastliðinn, þar sem hún afþakkar boð nefndarinnar um að ræða Lekamálið, kom jafnframt fram að hún hyggist snúa aftur á Alþingi eftir miðjan apríl.
Hanna Birna sagði af sér sem innanríkisráðherra 21. nóvember síðastliðinn vegna Lekamálsins og óskaði eftir ótímabundnu leyfi frá þingstörfum í kjölfarið. Hún þiggur ekki þingfarakaup á meðan.
Kjarninn náði ekki tali af Hönnu Birnu í dag til að forvitnast um hvenær von sé á henni aftur til þingstarfa. Sigríður Á. Andersen, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins sem tók sæti á Alþingi fyrir Hönnu Birnu, staðfestir í samtali við Kjarnann að hún hafi átt í nýlegum samskiptum við innanríkisráðherrann fyrrverandi þar sem hún hafi tilkynnt henni að engin breyting hafi orðið á áformum hennar um að setjast aftur á þing.
Samkvæmt heimildum Kjarnans er hins vegar ekki von á Hönnu Birnu aftur til þingstarfa fyrr en í þar næstu viku.