Haraldur Benediktsson hættur við að hætta

Fyrr í mánuðinum sagði Haraldur Benediktsson að hann myndi ekki taka annað sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi. Hann sigraði ekki í prófkjöri en hefur nú skipt um skoðun.

Haraldur Benediktsson.
Haraldur Benediktsson.
Auglýsing

Har­aldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, ætlar að þiggja annað sætið á lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ing­um. Hann hafði áður sagt að hann myndi ekki vera á lista ef hann tap­aði í odd­vitaslag gegn Þór­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dótt­ur, vara­for­manni flokks­ins. Þór­dís sigr­aði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu með miklum yfir­burðum um síð­ustu helgi og fékk tæp­lega 60 pró­sent atkvæða í fyrsta sætið á lista.

Har­aldur segir í sam­tali við Skessu­horn í dag að hann hafi á síð­ustu dögum með­tekið gríð­ar­legan fjölda áskor­ana um að þiggja annað sætið á list­an­um. „Þar eiga í hlut bæði dyggir stuðn­ings­menn mínir í gegnum tíð­ina og einnig óflokks­bundið fólk sem annt er um stöðu lands­byggð­ar­inn­ar. Ég get því ekki litið fram­hjá þeirri stað­reynd að þrátt fyrir allt virð­ist ennþá vera eft­ir­spurn eftir störfum mínum á þingi. Ég get því upp­lýst að ég lýsi mig til­bú­inn í fram­boðs­slag­inn.“

Í aðdrag­anda próf­kjörs­ins, sem fór fram síð­ustu helgi, sagði Har­aldur í við­tali við Bæj­ar­ins besta að hann hygð­ist ekki taka annað sæti á lista, færi það svo að hann tap­aði í bar­átt­unni um odd­vita­sæt­ið.

Þessir úrslita­kostir féllu í grýttan jarð­veg hjá sam­flokks­konum Har­ald­ar, þeim var líkt við hót­anir í garð sam­flokks­fólks í kjör­dæm­inu og Har­aldur auk þess sagður frek­ur, líkt og fjallað var um í umfjöllun Vísis. En nið­ur­staðan varð annað sætið fyrir Har­ald og því var allt útlit fyrir að hann myndi ekki setj­ast á þing eftir kom­andi kosn­ing­ar.

Það hefur nú breyst.

Auglýsing
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú tvo þing­menn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og kann­anir benda til þess að sú staða verði óbreytt. Ákvörðun Har­aldar hefur því þau áhrif að Teitur Björn Ein­ars­son, sem lenti í þriðja sæt­inu í próf­kjör­inu og hafði vænt­ingar um að vera færður upp í annað sætið vegna fyrri yfir­lýs­inga Har­ald­ar, er lík­ast til ekki á leið­inni á þing.

Brynjar hætti líka við að hætta

Har­aldur er annar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem er hættur við að hætta eftir að hafa ekki náð til­ætl­uðum árangri í próf­kjöri fyrir kom­andi kosn­ing­ar. Í gær greindi Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík, að hann hefði tekið þá ákvörðun að þiggja sæti á lista flokks­ins. Brynjar lenti í fimmta sæti í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík en hafði sóst eftir öðru sæt­inu, og þar með odd­vita­sæti í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Nið­ur­staðan þýddi að Brynjar yrði í þriðja sæti á lista flokks­ins í öðru kjör­dæm­inu, en það er bar­áttu­sæti þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur þrjá þing­menn í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í dag og tvo í hinu.

Í stöðu­upp­færslu á Face­book sem Brynjar birti í gær sagði: „Mér var bent á af sér­fræð­ingum í eðli próf­kjara og Kreml­ar­lógíu flokks­ins að nið­ur­staða próf­kjörs­ins hafi verið í raun verið góð fyrir mig. Að lokum náð­ist að sann­færa mig um að ég hafi verið sig­ur­veg­ari próf­kjörs­ins, eig­in­lega stór­sig­ur.

Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kóf­sveittur og illa lykt­andi hef ég ákveðið að þiggja sæti á list­an­um, ef það stendur þá enn til boða. Ég er sann­færður um að stefna flokks­ins sé góð fyrir land og þjóð. Ég tel að ég geti orðið að liði í kom­andi kosn­inga­bar­áttu og er sann­færður um að sterkur og breiður Sjálf­stæð­is­flokkur er mik­il­vægur svo að okkur vegni vel, meira nú en oft áður.

Í Sjálf­stæð­is­flokknum eru margar vist­ar­verur og við erum ólík. En við eigum sam­eig­in­legar hug­sjónir sem birt­ast í grunn­stefnu flokks­ins. Við þurfum hins vegar að berj­ast fyrir stefn­unni og hug­sjón­un­um. Þurfum kjark og þor í stað þess að ber­ast með straumn­um, sem á það til að fara í mis­góðan far­veg, öllum til tjóns.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent