Starfsgreinasambandið (SGS) boðar nú harðari verkfallsaðgerðir, sem bresta munu á í lok mánaðarins og í maímánuði, hafi ekki nást samningar fyrir þann tíma. Um er að ræða mun harðari og umfangsmeiri aðgerðir en áður höfðu verið boðaðar, en í stað staðbundinna vinnustöðvana hefjast allsherjarverkföll.
Aðgerðirnar ná til yfir tíu þúsund félagsmanna aðildarfélaga SGS og munu hafa mikil áhrif á fjölda vinnustaða um land allt. Atkvæðagreiðsla vegna verkfallsboðunarinnar hefst á mánudaginn og lýkur á miðnætti 20. apríl. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SGS sem barst fjölmiðlum nú fyrir skemmstu.
Þar segir: „Ástæðan fyrir þessu fyrirhuguðu hertu verkfallsaðgerðum Starfsgreinasambandsins eru m.a. tilraunir Samtaka atvinnulífsins til að tefja fyrir atkvæðagreiðslum launþegasamtaka og mikill baráttuvilji meðal félagsmanna aðildarfélaga Sambandsins. Upphaflega var áætlað að hefja vinnustöðvanir um miðjan þennan mánuð en vegna úrskurðar Félagsdóms varð að hefja atkvæðagreiðslu um aðgerðirnar upp á nýtt.“
Meginkrafan SGS hefur verið hækkun grunnlauna sem liggja nú í rúmum 200 þúsund krónum fyrir fulla vinnu og að lágmarkslaun fari þannig upp í 300 þúsund krónur innan þriggja ára. Krafan er sett fram meðal annars í ljósi mikils hagnaðar fyrirtækja og hækkana til hinna hæst launuðu í þjóðfélaginu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Starfsgreinasambandinu.
Þar er haft eftir Birni Snæbjörnssyni, formanni SGS: „Fólk er bara orðið reitt. Það er ekki hægt að lifa sómasamlegu lífi á þessum launum. Þegar við bætast hækkanir á matarskatti og hærri húsnæðiskostnaður þá er ljóst að staða verkafólks er orðin óviðunandi og það nær einfaldlega ekki að framfleyta fjölskyldum sínum. [...] Miðað við forsendur þær sem atvinnurekendur hafa sett fram þá er verið að bjóða þessu fólki upp á nokkra þúsund kalla í hækkun. Það sættir sig enginn við í okkar hópi og við erum því nauðbeygð að grípa til þessara aðgerða. Við vonum auðvitað í lengstu lög að það megi forða verkföllum. Þau eiga alltaf að vera neyðarúrræði. Það er hins vegar enginn bilbugur á okkar fólki og við erum búin undir að þetta geti orðið löng orrusta."
Skipulag verkfallsaðgerðanna:
30. apríl 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag.
6. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí).
7. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí).
19. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí).
20. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí).
26. maí 2015 - Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015.